Höfuðborg Skota er falleg, skemmtileg og frekar ódýr. Hún er kjörinn áfangastaður fyrir þá sem vilja komast í stutta borgarferð því þar er margt að sjá, vegalengdirnar stuttar og búðirnir fínar og nóg af skemmtilegum börum, kaffihúsum og veitingastöðum. Skotar eru líka sérstaklega skemmtilegir og kannski styttist í að þeir verði frændur okkar því marga dreymir um að landið verði sjálfstætt og í framhaldinu er víst planið að sækja um aðild að Norðurlandaráði.
Edinborg var nýlega valinn áfangastaður ársins í Evrópu og var það ekki síst verðlagið sem hitti í mark hjá dómnefndinni.
easyJet flýgur beint til Edinborgar allt árið um kring en WOW air frá júlí og fram til haustloka.
Mynd: Visit Scotland