Ódýr hótel í Kaupmannahöfn
Fimmtudagur, 29. apríl 2010 15:16
Ferðamannastraumurinn til Danmerkur hefur verið með minna móti síðustu misseri. Hátt gengi dönsku krónunnar hefur dregið úr heimsóknum frá nágrannalöndunum og fækkun utanlandsferða Íslendinga hefur líka sitt að segja. Enda stóðum við undir þremur prósentum allra gistinátta á hótelum borgarinnar þegar best lét. Þetta breytta landslag hefur gert það að verkum að víða má finna ágætis tilboð á hótelgistingu.
Hér fyrir neðan er niðurstaða leitar Túrista eftir ódýrustu gistingunni í Kaupmannahöfn eftir staðsetningu og gæðum.
Þriggja stjörnu í hjarta bæjarins
Rétt við Nýhöfn er einfalt þriggja stjörnu hótel sem kallast The Strand. Nóttin kostar um tuttugu þúsund ef tilboðinu um 25% afslátt er tekið . Annars staðar á heimasíðu hótelsins er gistingin hins vegar eilítið dýrari. Annað ágætt hótel á svipuðum slóðum og í sama verðflokki er Hotel Maritime. Það er ódýrara að bóka það á vefsíðu ferðamálaráðs Kaupmannahafnar en á heimasíðu hótelsins. Þriðja hótelið í svipuðum klassa er Christian IV og ef bókað er vortilboð þá kostar herbergið tæpar nítján þúsund. Fram til loka maí er opnunartilboð á nýuppgerðu Hótel Kong Frederik við Ráðhústorgið og kostar nóttin 995 danskar sem samsvarar rúmum 23 þúsund íslenskum.
Ódýrara í útjaðrinum
Eins og gefur að skilja er gistingin oftar en ekki ódýrari þegar komið er út fyrir innsta kjarna borgarinnar. Nóttin á ódýrustu herbergjunum á Wake up hótelinu við aðallestarstöðina kostar um fimmtán þúsund íslenskar krónur. Sömu verð er að finna á öllum fjórum Cabinn hótelunum. Þau tvö sem eru í Frederiksberg er ágætlega staðsett í námunda við Forum metróstöðina sem gerir ferðalagið til og frá flugvellinum ódýrt og þægilegt. Wake up er þó betri valkostur en Cabinn enda splunkunýr gististaður.
Gistiheimilin góður kostur
Þeir sem eru til í að deila baðherbergjum með öðrum gestum geta sparað sér töluverðan pening með því að bóka gistingu á gistiheimilum. Saga hótel, bakvið aðallestarstöðina, fær fína umsögn á bókunarsíðunni Hostelworld. Verðin eru frá 250 dönskum á mann ef fjórir deila herbergi. Það sama gildir um Hótel Løven á Vesterbrogade. Danhostel á og rekur nokkur gistiheimili í Danmörku. Flaggskipið er Danhostel Copenhagen City og þar fer vel um fjölskyldur, fjögra manna herbergi kostar um átján þúsund íslenskar á nótt ef bókað er á vef Hostelworld.
TENGT: Vegvísir - Kaupmannahöfn

