Verðið lækkar

Franskt kaffihúsMargur Frakkinn hefur hangið heima síðustu misseri í stað þess að verma sæti kaffihúsa. Lægri skattur á að vinda ofan af þessari þróun. Virðisaukaskattur á veitingum í Frakklandi var lækkaður úr  tæpum tuttugu prósentum niður í 5,5 þann 1. júlí sl. Fyrir matargesti jafngildir þetta verðlækkun á  hádegismatseðli um eina til tvær evrur en þriggja rétta hádegisverður  á hefðbundnum veitingastöðum í París kostar yfirleitt 10 til 15 evrur.

Samtök veitingamanna hafa heitið því að þessar breytingar skili sér í verðlagi en sumir efast um heilindi þeirra og telja að skammtarnir muni minnka að sama skapi.

 

Bookmark and Share
Get Adobe Flash player

Könnun

Ertu búin(n) að bóka utanlandsferð sumarsins?




Niðurstöður

Túristi á Facebook.

Get Adobe Flash player
Share |