Sjá og gera í Barcelona

Las Ramblas - Ramblan er engin venjuleg verslunargata. Hér er eiga vissulega mörg heimsþekkt vörumerki heimili sitt í Barcelona en þau hverfa eiginlega í skuggann af metnaðarfullum götulistamönnum og matarbásunum þar sem hægt er að kaupa sér spræka kjúklinga og kanínur í soðið. Þegar ofar dregur verður gatan öllu hefðbundnari. Vasaþjófar gera fólki oft lífið leitt í Barcelona og þeir eru sérstaklega varasamir á þessu svæði. Metróstöðin Catalunya el. Liceu liggur næst Römblunni.

Ströndin - Það er ótvíræður kostur við Barcelona sem ferðamannastað að finna má brúklegar baðstrendur í nágrenni við miðborgina. Það er því vissara að pakka strandfötunum niður ef vera skyldi að ströndin heillaði meira en ys og þys stórborgarinnar. Fjöldi veitinga og skemmtistaða er við strandlengjuna sem er hátt í sex kílómetrar að lengd. Metróstöðin Ciutadella-Villa Olímpica liggur vel við ströndina.

Antoni Gaudí - Verk arkitektsins Antoni Gaudí eru eitt af sérkennum Barcelona. Dómkirkjan, La Sagrada Familia, er þeirra þekktust en hún hefur verið í byggingu frá árinu 1882 og framkvæmdir eru í fullum gangi enn þann dag í dag. Áætlað er að verkinu ljúki á hundrað ára dánarafmæli Gaudí, 2026. Það má auðveldlega og að kostnaðarlausu virða fyrir sér kirkjuna frá öllum hliðum. Þeir sem vilja komast nær og inn verða að greiða aðgangseyri (11 evrur). Það er opið frá 9-20 yfir sumarmánuðina en til kl. 18 á veturna. Aðrar þekktar byggingar Gaudí eru Casa Battló, Casa Milá og garðurinn Park Güell.
Sjá á korti

Söfn

Nýlistasafnið, Macba er staðsett í El Raval. Safnið hefur reynst mikil lyftistöng fyrir hverfið og í dag eru fjölmargir veitingastaðir og verslanir þar í kring. Það kostar 7,5 evrur inn á safnið fyrir eldri en 14 ára. Safnið er opið á ýmsum tímum og má sjá nánar á heimasíðu safnsins.

Listmálarinn Pablo Picasso bjó á sínum yngri árum í Barcelona. Á Picasso safninu, í El Born hverfinu, er að geyma á fjórða þúsund verk frá upphafsárum listamannsins. Það er frír aðgangur að safninu eftir kl 15 á sunnudögum og fyrsta sunnudag hvers mánaðar en kostar annars 9 evrur fyrir 16 ára og eldri.

Safn Joan Míro er vinsæll áfangastaður ferðamanna þó það sé ekki í alfaraleið. Á safninu eru til sýnis verk frá löngum ferli listamannsins en einnig sérsýningar á verkum eftir aðra listamenn. Aðgangseyrir er 8 evrur.
Sjá á korti

Camp Nou - Þeir sem vilja kynna sér sögu knattspyrnuliðs Barcelona geta keypt sig inn á heimavöll liðsins, Camp Nou. Þar er hægt að skoða safn helgað liðinu og berja innviði leikvallarins augum.
Sjá á korti

 

Bookmark and Share

Share |