Kaupmannahöfn

Sá Íslendingur er vandfundinn sem ekki hefur heimsótt höfuðborg Danmerkur á lífsleiðinni. Síðustu ár höfum við fjölmennt til borginnar og erum eiginlega hætt að kalla borgina sínu rétta nafni. Við notum þess í stað gælunafnið Köben og einu kortin sem við höfum á rölti um borgina eru greiðslukort. Enda rata flestir orðið um Strikið og nágrenni þess.

Við tengjumst auðvitað Kaupmannahöfn og Danmörku merkilegum böndum og þau skýra að hluta til vinsældir borgarinnar hjá íslenskum ferðamönnum. En ætli við myndum nokkuð nenna að leggja leið okkar þangað reglulega nema fyrir þær sakir að borgin hefur upp á svo margt að bjóða. Stærð hennar er líka þægileg og mannfjöldinn hæfilegur. Tíminn nýtist því í eitthvað skemmtilegra en neðanjarðarlestar, umferðarteppur eða langar biðraðir. Kannski þess vegna má reikna með að Kaupmannahöfn verði áfram vinsælasti áfangastaður íslenskra ferðamanna enda er tíminn sem við verjum í útlöndum núna enn dýrmætari en árin þar á undan. Borgin er þó dýr og sérstaklega á þeim slóðum þar sem flestir ferðamenn eru. Túristi beinir því sjónum sínum að þeim stöðum þar sem fólk fær meira fyrir peningana og ætti því að geta forðast túristagildrurnar sem lagðar hafa verið vítt og breitt í hinni vinalegu Köben.

Innblástur fyrir næstu Kaupmannahafnarferð:

Ódýr danskur dagur

Borðað á Vespu

Góðar greinar:

Guardian   Hjólandi um Danmörku

Góðar síður

Íslensk heimasíða ferðamálaráðs Danmerkur

Íslensk heimasíða ferðamálaráðs Kaupmannahafnar