Sjá og gera London
Tate nútímalistasafnið er til húsa í mjög tilkomumikilli byggingu sem upprunalega var byggð utan um heljarstórt orkuver. Í dag geymir húsið klassísk verk eftir frægustu listamenn síðustu aldar. Þeir sem standa fremst á sínu sviði í dag fá líka að láta ljós sitt skína, t.a.m. Ólafur Elíasson.Frítt inn nema á sérstaka viðburði
Opið: Frá klukkan tíu til sex alla daga (opið til kl. 22 föstudaga og laugardaga)
Tube: Southwark/ St. Paul’s
Saatchi galleríið keppist við að vera með puttana á púlsinum með sýningum á verkum fólks sem er að ná á toppinn. Safnið flutti í glæsilegt slott í Chelsea hverfinu haustið 2008 og líkt og á öllum betri söfnum er hægt að borða góðan mat og versla í leiðinni.
Frítt inn.
Opið: frá kl. 10 til 18 alla daga.
Tube: Sloane Square/Victoria
British Museum rekur sögu mannkynsins síðustu tvær milljónir ára. Hér er gífurlegt magn stórmerkilegra hluta til sýnis og hafa upprunalönd margra þeirra gert tilkall til þeirra í gegnum árin. Til dæmis vilja Grikkir að munir sem teknir voru úr Parþenon hofinu á Akrópólisarhæð verði skilað. Múmíurnar eru hápunktur heimsóknarinnar fyrir marga af yngstu gestum safnsins.
Frítt inn.
Opið: 10 til 17:30 alla daga en til 20:30 á fimmtudögum og föstudögum.
Great Russell Street
Tube: Russell Square/ Holborn/ Tottenham Court Road
Tower bridge er eitt af kennileitum borgarinnar. Þeir sem vilja kíkja á inniviði turnanna tveggja geta fengið að kíkja inn gegn sjö punda gjaldi. Útsýnið úr göngubrúnni sem tengir turnana saman er glæsilegt og er vel heimsóknarinnar virði. Um það bil hundrað sinnum á ári er brúargólfið opnað fyrir skipaumferð um Thames ánna. Hér má sjá hvenær er mögulegt að verða vitni að því.
Tower Bridge Road
Tube: Tower Hill/ London Bridge
The London Eye - Þetta risavaxna parísarhjól snýst svo hægt að gestirnir stíga um borð án þess að hjólið stöðvist. Hér gefst gott tækifæri til að virða borginna fyrir sér jafnt að degi sem kveldi en þeir reyndustu segja útsýnið best við sólsetur. Ferðin tekur hálftíma.
Aðgangseyrir: 17,5 pund fyrir 16 ára og eldri, 8,75 pund fyrir 4 til 15 ára en frítt fyrir fyrir börn yngri en 4 ára.
Westminster Bridge Road
Tube: Waterloo/ Westminster
Vaktskipti lífvarða hennar hátignar á morgnanna fara fram með miklum bravúr. Hljómsveit leikur hefðbundna marsa eða jafnvel þekkt popplög á meðan mennirnir í rauðu jökkunum með bjarnarskinshúfurnar taka sporin sín. Skiptin fara fram klukkan ellefu á morgnana en klukkutíma fyrr á sunnudögum. Ef illa viðrar er seremónían oft flautuð af.
Heimasíða lífvarðanna er hér.
Buckingham Palace
Tube: Victoria Station/ Green Park
Sjá á korti
Camden town er ein helsta uppeldisstöð breskra poppara og listamanna og hér hafa þeir margir hverjir keypt sér notaðar gallabuxur og drukkið bjór áður en heimfrægðin knúði dyra. Flóamarkaðurinn er margrómaður og laðar að sér ungt fólk og þá sem meðvitaðir eru um nýjustu strauma og stefnur í tísku- og tónlistarbransanum.
Chalk Farm Road
Tube: Camden Town eða Chalk Farm
