París

Flokkar: Sjá og gera í París - Matur og drykkur ParísBörn í París

Flest okkar eiga aðeins eftir að verja nokkrum dögum ævinnar í París. Það er eiginlega synd að fá ekki meiri tíma til að kynnast þessari spennandi borg. París hefur ótrúlega sögu að geyma og hefur verið heimavöllur snillinga á flestum sviðum mannlífsins. Það er mikilvægt að ætla sér ekki um of á stuttum tíma heldur einbeita sér frekar að fáum hlutum og njóta augnabliksins. Gefið ykkur frekar tíma á fallegu götukaffihúsi í stað þess að bíða í biðröðum á vinsælustu ferðamannastöðunum.


Það er tilvalið að byrja ferðina í Latínuhverfinu og fá hefðbundnu Parísarstemmninguna beint í æð þar sem heimamenn og ferðamenn rölta um göturnar, þjónar kaffihúsanna skjótast milli borða og kaupmenn raða í hillur lítilla sérverslana. Í Montmartre hverfinu má feta í fótspor listamanna eins og Van Gogh og Picasso og svo má njóta fjölbreytts mannlífsins í Mýrinni. Áhugafólk um tísku getur síðan fengið eitthvað fyrir sinn snúð á Saint-Germain-des-Prés þar sem helstu tískuhús Frakka eru til húsa.

Góðar síður

Parísardaman

Atburðir næstu vikna:

Time out - Listi yfir alla þá viðburði sem framundan eru í París

 

Innblástur fyrir næstu ferð

Mýrin hefur margt að bjóða

Ekkert fjölskylduhótel

Parísartíska á stórafslætti

Get Adobe Flash player

Könnun

Ertu búin(n) að bóka utanlandsferð sumarsins?




Niðurstöður

Túristi á Facebook.

Share |