Matur og drykkur París

L´Ebauchoir (43rue de Citeaux) - Hér ræður gamli skólinn ríkjum í matargerð og verðinu er stillt í hóf. Kúnnahópurinn er góð blanda af eldra fólki og stúdentum. Hádegismatseðillinn, þriggja rétta og drykkur, kostar 13,5 evrur virka daga. Aðalréttir á kvöldin kosta í kringum 30 evrur.
Metro: Faidherbe-Chaligny og Reuilly-Diderot
Staðsetning

Au Gourmand (17rue Moliére) - Það þykir undrun sæta hvernig eigandi þessa litla veitingastaðar getur haldið verðinu á þriggja rétta máltíð undir 30 evrum. Aðalréttirnir eru blanda af pasta-, kjöt- og fiskréttum ásamt því meðlæti sem hæfir árstíðinni.
Metro: Palais Royal, Musee du Louvre, Pyramide
Staðsetning

Bistrot Victoires (6 rue de la Vrillière) - Heimamenn fjölmenna í hádegishléinu á þennan sígilda matsölustað í Óperuhverfinu. Hér fást safaríkar steikur á 11 evrur og ljúffengir eftirréttir á 5 evrur. Á háannatíma má búast við bið eftir borði. Staðurinn er lokaður milli kl 15-19 á daginn.
Metro: Pyramides or Bourse
Staðsetning


Le Baron Rouge (1 rue Théophile Roussel) - Þessi huggulegi vínbar, í nágrenni við Bastilluna, er tilvalinn staður fyrir þá sem setja vínið í öndvegi. Vínlistinn telur um fimmtíu tegundir og hægt að fá glas af fínu víni fyrir 3,5 evru og minna. Á boðstólnum eru einnig smáréttir og brauð. Hverfið í kringum staðinn er mjög skemmtilegt og upplagt að kíkja á matarmarkaðinn við Place d'Aligre, Le Marché d'Aligre. Um helgar enda margir heimamenn markaðsferðina með vínglasi á einmitt þessum vínbar.
Metro: Ledru Rollin
Staðsetning

Bookmark and Share