Börn í París
Jardin d'Acclimatation er skemmtigarður í útjaðri borgarinnar, í skóginum Bois de Boulogne, þar sem bæði börn og fullorðnir geta gert sér glaðan dag. Hér er boðið upp á alls kyns tívolítæki, lítinn dýragarð og margt fleira. Ef veðrið býður ekki upp á útiveru er alltaf hægt að heimsækja barnasöfnin, m.a. Picasso. Það er ekki úr vegi að taka með sér nesti þótt einnig sé hægt að kaupa veitingar á svæðinu.
Aðgangseyrir er 2,90 evrur fyrir þriggja ára og eldri, svo er greitt 2,70 evrur í tækið eða 32 evrur fyrir 15 miða kort.
Metro: Les Sablons. Þaðan er svo 150 metra gangur að garðinum. Einnig er hægt að taka litla lest gegnum skóginn
Við Square du Temple í Marais eða Mýrinni er að finna leikvöll þar sem barnapíur hverfisins koma með krakkana. Það er því sniðugt að byrja að enda skoðunarferð um eitt skemmtilegast hverfi borgarinnar á leikvellinum.



