Þeir ferðamenn sem gera kröfur um einkapíanista, þyrlupall og sinn eigin kokteilbar eru sennilega ekki í lesendahópi Túrista. En fljótt skipast veður í lofti. Hér er því listi yfir tíu dýrustu hótelherbergi í heimi. Upptalningin gæti gagnast einhverjum þegar fram líða stundir.
10. Imperial svítan á Park Hyatt Vendôme í París
Borðstofan í svítunni er tvö hundruð fermetrar og svalirnar sextíu. Það er einnig bar, sauna og nuddbekkir á herberginu. Nóttin kostar um tæpar tvær milljónir íslenskra króna.
9. Konunglega svítan, Four Seasons George V, París
Rókokkó mublurnar eru allt í öllu á dýrasta herberginu á þessu lúxus hóteli í París. Anddyrið er úr hreinum marmara.
8. Royal Armleder svítan á Le Richemond hótelinu í Genf
Af risastórum svölunum er útsýni yfir borgina og Alpana. Það eru mósaík flísar á veggjum, fínustu tréfjalir á gólfum og í gluggunum eru skotheld gler. Sólarhringsdvöl kostar rúmar tvær milljónir króna.
7. Konunglega svítan, Burj Al Arab, Dubaí
Þeir sem leigja þessa svítu geta ráðið hvort þeir eru sóttir út á flugvöll í Rolls Royce eða þyrlu. Þegar inn er komið er svo nægt pláss því fermetranir eru tæplega átta hundruð og þar er meðal annars að finna lítinn bíósal. Á baðherberginum er allt merkt lúxus vörumerkinu Hermés.
6. Svítan á Ritz-Carlton hótelinu í Moskvu
Af nýríkum Rússum er nóg og því skal ekki undra að í höfuðborginni sé nægt úrval af glæsilegum hótelum. Svítan á Ritz ber þar af. Gestirnir þurfa ekki annað en að smella fingri ef þeir vilja snæða fimm rétta máltíð á meðan þeir virða fyrir sér útsýnið yfir Rauða torgið.
5. Brúarsvítan á Atlantis resort á Bahamas
Þessi tíu herbergja svíta hefur hýst marga fræga. Þar á meðal konung poppsins, Michael Jackson og nafna hans Jordan. Nóttin kostar sem samsvarar þremur milljónum íslenskra króna.
4. Konunglega penthouse svítan á President Wilson Hotel í Genf
Það eru sex baðherbergi en bara fjögur svefnherbergi á þessari svítu. Líkt og á svítunni á Le Richmond hótelinu í sömu borg þá eru einnig skotheldar rúður hér. Fjórar milljónir króna kostar ein nótt í þessu híbýlum sem hafa að geyma kokteilbar sem rúmar fjörtíu manns.
3. Ty Warner penthouse, Four seasons hótelið í New York
Sjónvarpssjúklingar fá eitthvað fyrir sinn snúð hér því loftnetið nær öllum sjónvarpsstöðvum í heiminum. Þeir sem vilja hins vegar frekar horfa út um gluggann geta notið útsýnisins yfir borgina. Það er líka flygill á svæðinu og einkaþjónn.
2. Palms Casino resort, Hugh Hefner loftkastalinn, Las Vegas
Þetta er herbergið fyrir þá sem eru tilbúnir til að punga út tæpum fimm milljónum króna til að komast í einhvers konar Playboy stemmningu. Úr heitapottinum er útsýni yfir hina glitrandi spilaborg Las Vegas. Í svefnherberginu snýst risastór rúm undir speglalofti. Lummulegra verður það varla.
1. Konunglega villan, Grand Resort Lagonissi í Aþenu
Það er þjónustufólk á hverju strái í dýrasta hótelherbergi í heimi. Þar er meira að segja píanóleikari sem hefur aðeins það hlutverk að leika óskalög fyrir gestina. Nóttin kostar rúmlega sex milljónir íslenskra króna og þar er upphituð sundlaug og einkaströnd. Þeir sem vilja komast í tæri við þennan gríska lúxus geta bókað sig inn á ódýrasta herbergið á Grand Resort. Það kostar tæplega fimmtíu þúsund íslenskar.
Þessu tengt: Heimsins bestu gistiheimili – Groddalegur íburður
Heimild: The Telegraph – Mynd: Grand Resort