Samfélagsmiðlar

5 góð ráð fyrir Októberfest

Bjórhátíðin mikla í München hefst á laugardaginn. Hér eru fimm heilræði fyrir þá sem vilja fá sem mest út úr heimsókninni á hátíðarsvæðið.

Það eru tvö hundruð ár síðan að krónprinsinn Lúðvík gekk að eiga prinsessuna Theresu í höfuðborg Bæjaralands. Brúðkaupsveislan stóð í marga daga og þótti það vel heppnuð að allar götur síðan hefur leikurinn verið endurtekinn með tilheyrandi glaum og gleði.

Á laugardaginn fyllir borgarstjóri München fyrstu bjórkrúsina og í framhaldinu munu brjótast út mikil fagnaðarlæti meðal þeirra þúsunda manna sem mættir verða í bjórtjöldin þann daginn. 

Ferðaritið Lonley Planet hefur tekið saman þessi fimm góðu ráð fyrir þá sem ætla sér að ætla að taka þátt í partíinu.

  1. Bjórinn er afgreiddur í eins lítra krúsum. Áður en fyrsti sopinn er tekinn er mikilvægt að segja „Prost“, skála svo við sessunautin og ná svo augnkontakt við alla þá sem sitja við borðið og síðan taka sopa

  2. Björtjöldin loka á miðnætti og því er best að halda heim nokkru áður til að komast hjá því að dúsa lengi í röð eftir strætó eða leigubíl.

  3. Virkir dagar eru bestu dagarnir til að heimsækja hátíðarsvæðið því mannþrönginn um helgar getur verið alltof mikil

  4. Gott er að hafa á sér nóg reiðufé svo tíminn fari ekki til spillis í röðum við hraðbanka

  5. Það er ódýrara að fara á hátíðina á fjölskyldudögum (21. og 28.september frá hádegi til klukkan sex og 4.október frá tíu til þrjú). Fyrir klukkan þrjú um helgar eru oft tilboð á veitingastöðum og í tívolítækin.

Októberfest stendur til fjórða október.

 

TENGDAR GREINAR: Byggilegustu borgir í heimi
NÝJAR GREINARÓdýr og grænblá hótel í Þýskalandi

Mynd: Oktoberfest.de


 

 

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …