Samfélagsmiðlar

Delta ódýrara en íslensku flugfélögin

Fyrri hluta sumars kostar minna að fljúga með Delta en íslensku flugfélögunum samkvæmt verðkönnun Túrista.

Ódýrustu fargjöldin á flugi í sumar, m.v. brottför frá Keflavík á fimmtudegi og frá New York á sunnudegi.

Fimmtudagur til sunnudags Delta Iceland Express  Icelandair
 2.júní til 5. júní 53.470 ekki flug 5.júní  67.420
 9.júní til 12.júní 53.470 63.455 63.320
 16.júní til 19.júní 53.470 59.740 63.320
 23.júní til 26.júní 53.470 69.660 70.320
30.júní til 3.júlí  53.470 69.660 70.320
 7.júlí til 10.júní 53.470 69.660 74.420
 14.júlí til 17.júlí 53.470 72.200 83.520
 21.júlí til 24.júlí 111.470 69.660 88.520
 28.júlí til 31.júlí 139.570 72.200 88.520
 4.ágúst til 7.ágúst 95.270 67.120 88.520
 11.ágúst til 14.ágúst 95.270 67.120 83.520
 18.ágúst itl 21.ágúst 69.770 67.120 83.520
 25.ágúst til 28.ágúst 53.470 67.120 73.920

verðin eru fengin á heimasíðum félaganna 15. og 16.janúar. 

Smellið til að sjá töflur yfir fargjöld flugfélaganna þriggja í sumar frá föstudegi til föstudags.

TENGDAR GREINAR: Þriðja nóttin frí á fínni hótelum Manhattan
TILBOÐ: Gistiheimili og hótelíbúðir í LondonÓdýrt hótel í Kaupmannahöfn

 

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …