Samfélagsmiðlar

Delta ódýrara en íslensku flugfélögin

Fyrri hluta sumars kostar minna að fljúga með Delta en íslensku flugfélögunum samkvæmt verðkönnun Túrista.

Þann fyrsta júní hefst áætlunarflug bandaríska félagsins Delta milli New York og Keflavíkur. Upphaflega stóð til að fljúga daglega en þeim áformum var breytt í nóvember og niðurstaðan er fimm flug í viku. Þrátt fyrir það er leit að jafn metnaðarfullu íslandsflugi erlends flugfélags. Delta verður þriðji valkosturinn sem við höfum til að ferðast til austurstrandar Bandaríkjanna en Iceland Express hóf flug þangað síðasta sumar og New York hefur verið hluti að leiðarkerfi Icelandair í tugi ára.

Sparnaðurinn aldrei minni en tíu þúsund krónur

Þegar verð félaganna þriggja er skoðað kemur í ljós að það bandaríska býður töluvert lægri verð en þau íslensku frá byrjun júní og fram í miðan júlí. Helgarferð með Delta (fimmtudagur til sunnudags) kostar 53.470 krónur á þessu tímabili sem er að minnsta kosti sex þúsund krónum ódýrara en lægsta verð Iceland Express, 59.740 krónur. Verðmunurinn er ennþá meiri þegar vikuferðalag, sem byrjar og endar á föstudegi, er pantað. Þá er munurinn ekki minni en rúmlega tíu þúsund krónur. Ódýrasti miðinn hjá Delta kostar þá líka 53.370 krónur en 64.320 hjá Icelandair sem er næst ódýrast. Frá miðjum júlí hækkar verðið hins vegar hratt hjá Delta og Iceland Express verður ódýrast.

Túristi bar aðeins saman dagsetningar þar sem öll þrjú félögin fljúga en bandaríska félagið fer ekki frá Keflavík þriðjudaga og miðvikudaga. Séu aðrar samsetningar daga prófaðar geta verðið verið allt önnur.

Tvöfaldur verðmunur

Dýrasta helgarferð sumarsins (fimmtudagur til sunnudags) er með Delta þann 28. til 31. júlí. Hún kostar hún 139.579 kr. sem er næstum tvöfalt hærra verð en greiða þarf hjá Iceland Express þessa sömu helgi eða 72.200 kr.  Icelandair var aldrei með lægsta verðið í könnun Túrista en hafa ber í huga að félagið er það eina sem býður upp á fleiri en eitt flug á dag og um leið frían aðgang að afþreyingarkerfi sínu. Hjá hinum þarf að greiða sérstaklega fyrir þess háttar þjónustu. Léttar veitingar eru jafnframt seldar hjá Iceland Express en eru fríar hjá hinum.

Smellið til að sjá töflur yfir fargjöld flugfélaganna þriggja í sumar:
Helgarferðir
Vikuferðir

TENGDAR GREINAR: Þriðja nóttin frí á fínni hótelum Manhattan
TILBOÐ: Gistiheimili og hótelíbúðir í LondonÓdýrt hótel í Kaupmannahöfn

 

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …