Líkt og undanfarin ár þykja gistihúsin í Lissabon skara fram úr. Hér eru þau þrjú bestu í heimi og einnig þau sem best í borgunum sem við Íslendingar sækjum oft heim.
Góð gistiheimili eru í flestum tilfellum betri kostur fyrir túrista en úr sér gengin hótel í ódýrari kantinum. Þjónustan er alla jafna persónuleg, staðsetningin góð og heimilislegur blær yfir aðstöðunni en þó verða allir að vera tilbúnir til að deila baðherbergi með hinum.
Á heimasíðunni Hostelworld er hægt að bóka ódýra gistingu í flestum löndum og um leið lesa dóma og einkunnir frá fólki sem hefur dvalið hefur á viðkomandi stöðum. Árlega verðlauna aðstandendur síðunnar bestu gistiheimilin og í ár, líkt og í fyrra, eru þau þrjú bestu í höfuðstað Portúgals. Listinn er byggður á meira en einni milljón umsagna ferðamanna.
Þessi þrjú þykja þau bestu í heiminum og þau eru öll í Lissabon:
Traveller´s House. Þriðja árið í röð er Traveller´s House í Baixa hverfinu, hjarta borgarinnar, valið það besta í heimi. Ódýrustu herbergin eru á 25 evrur en svefnplássin frá 15 evrum með morgunmat.
Lisbon Lounge house. Er líka í Baixa hverfinu, sem er þó ekki skemmtilegasti hluti borgarinnar en ákaflega hentugur fyrir á sem eru í Lissabon í fyrsta skipti. Beddinn kostar 18 evrur en tveggja manna herbergi fimmtíu. Morgunmaturinn fylgir.
Living Lounge. Smekklegt gistiheimili rétt við Baixa-Chiado metróstöðina og í stuttu göngufæri frá hinu líflega Biarro Alto hverfi.
Hér eru svo þeir gististaðir sem fá mesta lofið í nokkrum af þeim borgum sem við getum flogið beint til frá Keflavík:
Amsterdam: Flying Pig Downtown – Það er víst alltaf glatt á hjalla á þessu vinsæla gistihúsi við aðallestarstöðin í Amsterdam þar sem gistingin kostar a.m.k. 15 evrur.
Barcelona: Sant Jordi Arago – Þar deila gestirnir herbergjum og kostar beddinn um 27 evrur á sumrin.
Berlín: Raise a Smile Hostel – Gisthús í Friedrichshain sem rekið er af mannúðarsamtökum frá Zambíu. Ódýrustu tveggja manna herbergin á rúmar fimmtíu evrur en rúm í stærri herbergjunum kostar frá 9 evrum.
Kaupmannahöfn: Zleep in heaven – Aðeins þeir sem eru á aldrinum 16 til 35 ára mega gista á þessu vinsæla gistihúsi á Norðurbrú.
London: YHA London Central – Sjá grein Túrista um þetta farfuglaheimili í nágrenni við Oxford stræti.
Stokkhólmur: City Backpackers – Frítt pasta og sauna á hverju kvöldi.
TENGDAR GREINAR: Bestu hótelin – Gist ódýrt en með stæl í New York
NÝJAR GREINAR: Ódýrustu borgarferðirnar um páskana
TILBOÐ: 10% afsláttur fyrir lesendur Túrista á hótelíbúðum í Berlín
Mynd: Traveller´s House