Á fjölda hótela er hætt að leigja gestunum dónalegar bíómyndir.
Það er ekki lengur neitt að græða á útleigu klámmynda í hótelgeiranum. Ástæðan er sú að gestirnir ræsa frekar fartölvurnar sínar til að komast í grófa efnið en að panta ræmurnar með fjarstýringunni samkvæmt frétt News.com.au.
Af þessum sökum hafa margir hóteleigendur hætt að sýsla með klám, þar á meðal Marriot hótelkeðjan sem rekur þrjú þúsund og fimm hundruð gististaði um víða veröld.
TILBOÐ: Gistiheimill og hótelíbúðir í London frá 99 pundum
NÝJAR GREINAR: Þúsund íslenskir útlendingar sóttir heim
Mynd: John Althouse Cohen (Creative Commons)