Þau lönd sem laða til sín flesta ferðamenn.
Ferðaþjónustan í Kína hefur sótt í sig veðrið síðustu ár og er landið nú þriðji vinsælasti áfangastaður ferðamanna. Frakkland heldur hins vegar fast í fyrsta sætið en þangað komu nærri sjötíu og sjö milljónir ferðamanna á síðasta ári samkvæmt tölum frá UNWTO, ferðamálanefnd Sameinuðu þjóðanna. Það er töluvert meiri fjöldi en heimsótti næstvinælasta landið, Bandaríkin, heim.
Fjöldi gesta í tíu vinælustu ferðamannalöndunum á síðasta ári, tölur í sviga sýna hlutfallslega breytingu frá fyrra ári.
- Frakkland: 76,8 milljónir (0,0%)
- Bandaríkin: 59,7 milljónir (8,7%)
- Kína: 55,7 milljónir (9,4%)
- Spánn: 52,7 milljónir (1%)
- Ítalía: 43,6 milljónir (0.9%)
- Bretland: 28,1 milljónir (-0,2%)
- Tyrkland: 27 milljónir (5,9%)
- Þýskaland: 26,9 milljónir (10,9%)
- Malasía: 24,6 milljónir (3,9%)
- Mexíkó: 22,4 milljónir (4,4%)
NÝJAR GREINAR: Íslendingar við konunglegt brúðkaup í Bútan
Hotels.com: Sumarútsala – bókaðu gistingu með 40% afslætti
Mynd: Ferðamálaráð Parísar