Farþegar Iceland Express þurftu enn að sýna mikla biðlund vegna óstundvísi félagsins. Þeir sem eiga bókað tengiflug verða að hafa varann á vegna þessara miklu seinkana.
Aðeins þriðja hver vél Iceland Express, til og frá Keflavík, hélt áætlun síðustu sjö daga og meðaltöf á brottför var 48 mínútur. Icelandair flaug í tæplega áttatíu prósent tilvika á réttum tíma og seinkunin var að jafnaði rúmar sjö mínútur. Þetta sýna Stundvísitölur Túrista sem byggðar eru á upplýsingum um komu- og brottfaratíma á heimasíðu Leifsstöðvar.
Þegar stundvísi á einstökum flugleiðum er skoðuð vekur athygli að ferðir Iceland Express til New York stóðust aðeins einu sinni áætlun fyrstu fjórtán dagana í júlí.
Tengiflug tapast vegna tafa
Óstundvísi flugfélaga flækir skipulag ferðalagsins hjá þeim sem ætla sér að ná flugvél lengra út í heim sama dag og haldið er frá Íslandi. Því komi farþegi of seint í flug, t.d vegna seinkana á ferðum frá Ísland, þá er miðinn tapaður nema að hann hafi verið keyptur af sama aðila og flugið að heiman. Þeir sem vilja heldur bóka sjálfir ættu að fylgja ráðleggingum Neytendasamtakanna sem mælast til að það séu að minnsta kosti fjóra tímar í tengiflug frá lendingu.
Stundvísitölur Túrista fyrir 8. til 14. júlí (tölur í sviga eru niðurstöður síðustu viku)
Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma |
Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma |
Meðalbið alls | |
Icelandair | 78% (var 80%) | 7mín (var 4) | 73% (var 73%) | 8 mín (var 6) | 76% (var 76%) | 8 mín (var 5) |
Iceland Express | 32% (var 39%) | 48mín (var 40) | 32% (var 29%) | 41 mín (var 41) | 32% (var 34%) | 44 mín (var 41) |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar af öllum seinkunum sem eru meira en stundarfjórðungur.
NÝJAR GREINAR: Íslendingar við konunglegt brúðkaup í Bútan
Hotels.com: Sumarútsala – bókaðu gistingu með 40% afslætti
Mynd: Túristi