Á fyrri helmingi ársins fjölgaði farþegum um nærri fjórðung á Leifsstöð. Það er meiri viðbót en stóru flugvellir frændþjóðanna geta stært sig af.
Það fóru nærri hundrað og sjötíu þúsund fleiri farþegar um Keflavíkurflugvöll á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra. Vöxturinn er tuttugu og fjögur prósent sem er töluvert meira en stóru flugvellirnir á Norðurlöndunum upplifðu á fyrri helmingi ársins. Þó fjölgaði farþegum á þeim öllum umtalsvert frá sama tíma í fyrra eins og sjá má á töflunni hér að neðan sem byggir á tölum frá Isavia og Standby.dk.
Aukning í farþegum talið | Aukning í % | |
Keflavíkurflugvöllur | 168,125 | 24% |
Vantaa í Helsinki | 1,100,000 | 18% |
Arlanda í Stokkhólmi | 1,300,000 | 17% |
Gardermoen í Osló | 1,250,000 | 14% |
Kaupmannahafnarflugvöllur | 900,000 | 9% |
NÝJAR GREINAR: 750.000 túristar á pöllunum í Englandi
TENGDAR GREINAR: Takið af ykkur skóna – en bara í Leifsstöð
Mynd: Túristi