Bæði flugfélögin voru stundvísari á fyrrihluta þessa mánaðar en í þeim síðasta.
Níu af hverjum tíu brottförum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli, á fyrri hluta þessa mánaðar, voru á tíma. Hjá Iceland Express stóðst nærri helmingur ferðanna áætlun samkvæmt Stundvísitölum Túrista. Þetta er mikil framför hjá báðum félögum og mjög áhugaverð í tilviki Iceland Express því í júní var innan við fimmta hvert flug á tíma. Það er þó mikill dagamunur á áreiðanleika félagsins. Suma daga fara og koma flest flug á tíma en aðra daga eru tafirnar miklar. Meðalbiðin er því enn töluverð eða 26 mínútur á meðan hún er fimm mínútur hjá Icelandair.
Frammistaða Icelandair á fyrrihluta ágústmánaðar er á við það sem best gerist í fluggeiranum því líkt og Túristi sagði frá í byrjun mánaðarins þá er 85 til 90 prósent stundvísi á við það sem áreiðanlegustu flugfélög í Evrópu ná.
Stundvísitölur Túrista, tölur í sviga eru niðurstöður síðasta mánaðar.
1-15 ágúst | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma9 | Hlutfall ferða á tíma | Meðalbið alls |
Icelandair | 90% (78%) | 3 mín (8 mín) | 83% (73%) | 6 mín (7 mín | 86% (75%) | 5 mín (7 mín) |
Iceland Express | 48% (38%) | 27 mín (34 mín) | 45% (36%) | 26 mín (41 mín) | 46% (37%) | 26 mín (37 mín) |
TENGDAR GREINAR: Langt í land hjá Iceland Express þrátt fyrir bætingu
TILBOÐ: Kaupmannahöfn: Hotel Sct Thomas – 10% afsláttur fyrir lesendur Túrista