Hér eru þær borgir sem þykir best að búa í og líka þær sem eru á botninum.
Kanadískar og ástralskar borgir eru að mati rannsóknardeildar tímaritsins Economist (EIU) afskaplega byggilegar. Sjö af þeim tíu borgum sem blaðið telur henta best til búsetu eru nefnilega í þessum tveimur löndum.
Ólympíuborgin Vancouver, á vesturströnd Kanada, hefur undanfarin níu ár skipað efsta sætið en fellur nú um tvö sæti því Melbourne í Ástralíu og Vínarborg í Austurríki þykja núna vera betri kostur.
Helsinki er eina borg Norðurlanda sem kemst á topplistann en hún var nýlega valin byggilegust af tímaritinu Monocle.
Hins vegar er Harare, höfuðborg Zimbabwe, í sæti númer 140 sem er jafnframt botnsætið á lista Economist.
Hér eru listarnir yfir bestu og verstu borgirnar. Þeir gætu komið íslenskum túristum til góða við skipulagningu næstu ferðar út í heim.
Bestu borgirnar:
- Melbourne í Ástralíu
- Vínarborg í Austurríki
- Vancouver í Kanada
- Toronto í Kanada
- Calgary í Kanada
- Sydney í Ástralíu
- Helsinki í Finnlandi
- Perth í Ástralíu
- Adelaide í Ástralíu
- Auckland á Nýja Sjálandi
Verstu borgirnar:
- Harare í Zimbabwe
- Dhaka í Bangladesh
- Port Moresby á Papúa Nýju-Gíneu
- Lagos í Nígería
- Algeirsborg í Alsír
- Tripolí í Líbýu
- Karachi í Pakistan
- Douala í Kamerún
- Teheran í Íran
- Abidjan á Fílabeinsströndinni
TENGDAR GREINAR: Vegvísir fyrir Vancouver – 25 byggilegustu borgirnar
NÝJAR GREINAR: Hræódýr hádegismatur í Köben
TILBOÐ: Kaupmannahöfn: Hotel Sct Thomas – 10% afsláttur fyrir lesendur Túrista
Share |
Mynd: Linh_rOm/Creative Commons