Stundvísitölur: Lakari stundvísi

Færri flug héldu áætlun á fyrri hluta þessa mánaðar en í þeim síðasta.

Brottfarir frá Keflavíkurflugvelli hafa oftar staðist áætlun en komur undanfarnar vikur. Á því varð engin breyting á fyrri hluta þessa mánaðar. Þannig komu aðeins fjórar af hverjum tíu vélum Iceland Express á réttum tíma til landsins og sex af tíu hjá Icelandair.

Tímasetningar á flugtökum stóðust hins vegar mun oftar eins og sjá má á töflunni hér að neðan.

Stundvísitölur Túrista, 1. til 15. október (í sviga eru niðurstöður seinni hluta september).

1. – 15. okt. Hlutfall brottfara á tíma Meðalseinkun brottfara Hlutfall koma á tíma
Meðalseinkun koma Hlutfall ferða á tíma
Meðalbið alls
Icelandair 83% (95%) 6 mín (3 mín) 62% (79%) 9 mín (8 mín) 73% (87%) 8 mín (6 mín)
Iceland Express 77% (88%) 12 mín (10 mín) 39% (54%) 24 mín (31 mín) 57% (71%)

18 mín (21 mín)

Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum sem eru meira en stundarfjórðungur.

TENGDAR GREINAR: Brottfarir oftar á áætlun en komur
NÝJAR GREINAR: Stærsta Lególandið
TILBOÐ:
Kaupmannahöfn: Hotel Sct Thomas – 10% afsláttur fyrir lesendur Túrista