Valmöguleikarnir á beinu flugi héðan munu aukast með tilkomu Wow air. Félagið mun ekki sækja um flugrekstrarleyfi.
Meðal þeirra áfangastaða sem Wow air ætlar að fljúga til eru borgir sem hafa ekki verið hluti af leiðarkerfi Icelandair og Iceland Express. Að öðru leyti vill Baldur Oddur Baldursson hjá fjárfestingafélaginu Títan, eiganda Wow air, ekki tjá sig um til hvaða borga verður flogið. Hann segir að tilkynnt verði um áfangastaði og fjölda ferða á næstu vikum.
Aðspurður um hver markmiðin eru varðandi stundvísi segir Baldur að stefnt sé að því að hún verði framúrskarandi enda eigi félagið í samningaviðræðum um leigu á flugvélum sem muni gera það mögulegt.
Baldur staðfestir að ekki standi til að sækja um flugrekstarleyfi fyrir Wow air á næstu tólf mánuðum.
TENGDAR GREINAR: Stundvísitölur: Iceland Express lætur bíða eftir sér – Að fljúga eða fljúga ekki til Íslands
NÝJAR GREINAR: Áhrifamesti listamaður heims sýnir á Louisiana
FRÍVERSLUN: París: 4 nætur á verði þriggja
Mynd: Túristi