Fleiri brottfarir Iceland Express fóru í loftið á réttum tíma en hjá Icelandair á fyrri hluta mánaðarins. Komutímar þess fyrrnefnda héldu þó aðeins í innan við þriðjungi tilfella.
Komu- og brottfarartímar á Keflavíkurflugvelli stóðust ekki áætlun í fjöldamörgum tilvikum fyrstu tvær vikurnar í desember. Á móti kemur að tafirnar voru oftast litlar og því var meðalbiðtíminn stuttur hjá bæði farþegum Icelandair og Iceland Express.
Það voru sérstaklega ferðir til landsins sem seinkaði oft og aðeins 28 prósent af komum Iceland Express voru á réttum tíma og 55 prósent hjá Icelandair.
Í fyrsta skipti síðan Túristi hóf að reikna út stundvísitölur sínar héldu flug Iceland Express frá landinu oftar áætlun en hjá Icelandair eins og sjá má á töflunni hér að neðan. Í heildina biðu farþegar þó aðeins í 11 mínútur hjá báðum félögum.
Þess ber að geta að stundvísitölur Túrista eru byggðar á upplýsingum af heimasíðu Keflavíkurflugvallar og þar koma ekki fram ástæður seinkanna. Því er ekki tekið tillit til þess þegar ófærð veldur töfum á flugi.
Stundvísitölur Túrista, 1. til 15. desember (í sviga eru niðurstöður seinni hluta nóvember).
1. – 15. des. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalbið alls |
Icelandair | 67% (84%) | 10 mín (3 mín) | 55% (68%) | 12 mín (8 mín) | 61% (76%) | 11 mín (5 mín) |
Iceland Express | 75% (63%) | 6 mín (12 mín) | 28% (36%) | 16 mín (28 mín) | 51% (50%) | 11 mín (20 mín) |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum sem eru meira en stundarfjórðungur.
NÝJAR GREINAR: Meirihlutinn vildi morgunmat og nú er hann ókeypis – Ferðaminningar Steinars Braga – Þetta kostar maturinn um borð
TENGDAR GREINAR: Farþegar Iceland Express eiga rétt á fari með öðrum flugfélögum
Mynd: Túristi