Síðustu tvær vikur nýliðins árs var innan við helmingur af flugferðum til og frá landinu á tíma. Flugfarþegar hafa sem betur fer ekki þurft að bíða eins oft í upphafi árs.
Nærri sjö af hverjum tíu vélum Iceland Express og Icelandair fóru í loftið á réttum tíma á fyrsta hálfa mánuði ársins.
Komutímar stóðust hins vegar ekki eins oft eða í um helmingi tilvika hjá Icelandair og fjórða hvert skipti hjá Iceland Express. Tafirnar voru þó alla jafna mjög stuttar eins og sjá má á töflunni hér að neðan.
Flugferðir Icelandair til og frá Keflavík voru um sex sinnum fleiri en hjá Iceland Express á tímabilinu.
Stundvísitölur Túrista, 1. til 15. janúar (í sviga eru niðurstöður seinni hluta desember).
1. – 15. jan. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalbið alls |
Icelandair | 69% (52%) | 11 mín (19 mín) | 54% (43%) | 12 mín (19 mín) | 62% (47%) | 11 mín (19 mín) |
Iceland Express | 69% (44%) | 3 mín (32 mín) | 23% (3%) | 16 mín (64 mín) | 46% (23%) | 10 mín (49 mín) |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
NÝJAR GREINAR: Flugferðum fjölgar um 5 prósent – Farþegum fjölgaði mest hér á landi
TENGDAR GREINAR: Stundvísitölur: Aðeins annað hvert flug á tíma
Mynd: Túristi