Fimmtungs fjölgun gistinátta Íslendinga í Danmörku

Íslenskir ferðamenn keyptu nærri fjörtíu þúsund gistinætur á hótelum í Danmörku á síðasta ári. Langstærsti hlutinn var í Kaupmannahöfn.

Ferðum okkar til Danmerkur fjölgaði um nærri fimmtung á síðasta ári ef mið er tekið af þeim fjölda gistinátta sem hagstofa Dana merkir Íslendingum. Í heildina fjölgaði gistinóttum í Danmörku um þrjá af hundraði.

Hlutfall íslenskra ferðamanna í landinu hefur því aukist á milli ára og var um eitt prósent á því síðasta. Þrátt fyrir þessa aukningu er langt í að metið frá árinu 2007 verði slegið því þá mældust gistinætur Íslendinga á danskri grundu rétt um hundrað og þrjú þúsund. Þrefalt fleiri en í fyrra.

Átta af tíu í Kaupmannahöfn

Þær voru tæplega þrjátíu og átta þúsund næturnar sem Íslendingar gistu á dönskum hótelum, gistiheimilum, sumarhúsum og tjaldstæðum á síðasta ári. Af þeim voru rúmlega þrjátíu þúsund í höfuðborginni. Vinsældir Kaupmannahafnar þurfa ekki að koma á óvart því borgin er sá staður sem oftast er flogið til frá Íslandi samkvæmt talningu Túrista.

TENGDAR GREINAR: Meirihlutinn vildi morgunmat og nú er hann ókeypis
NÝJAR GREINAR: Toppurinn á Danmörku

Mynd: Túristi