Tímasetningar í millilandaflugi hafa ekki áður haldist jafn vel eins og þær gerðu á seinni hluta aprílmánaðar
Meira en níu af hverjum tíu flugum, til og frá landinu, stóðust áætlun á seinni hluta aprílmánaðar. Stundvísin hefur ekki jafn góð síðan Túristi hóf að reikna út stundvísitölur sínar fyrri nærri ári síðan.
Brottfarir Iceland Express og Icelandair frá Keflavík fóru í loftið á réttum tíma í 97 prósent tilvika á tímabilinu og komur til landsins voru líka nær alltaf á áætlun. Tafir í mínútum talið voru því sárafáar eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Þess ber að geta að flug Iceland Express frá London þann 16. apríl seinkaði vegna tímabundinnar lokunnar á Gatwick flugvelli. Komur til Keflavíkur 19. apríl eru ekki með í útreikningunum vegna tæknilegra mistaka.
Stundvísitölur Túrista, 16. til 30. apríl (í sviga eru niðurstöður fyrri hluta apríl).
16. – 30. apríl. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalbið alls |
Icelandair | 97% (95%) | 1 mín (2 mín) | 89% (81%) | 2 mín (4 mín) | 93% (88%) | 1 mín (3 mín) |
Iceland Express | 97% (95%) | 0 mín (2 mín) | 91% (87%) | 7 mín (8 mín) | 94% (91%) | 4 mín (5 mín) |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
Fylgstu með Túrista á Facebook
NÝJAR GREINAR: Ferðaminningar Óskar Axelssonar – Yfirvigt álíka dýr og fargjaldið
KÍKTU Í FRÍVERSLUN TÚRISTA
Mynd: Túristi