Samfélagsmiðlar

Skanna skóna tvisvar

Í gær spurði Túristi talsmann Isavia, Friðþór Eydal þessara spurninga:

a) Er það Isavia sem ákveður að allir farþegar þurfi úr skóm svo hægt sé að skanna skóbúnaðinn eða eru það yfirvöld í Bandaríkjunum?

b) Af hverju þarf að skoða skó farþega fólks á leið til Bandaríkjanna betur í Keflavík en þeirra sem fljúga frá stærsta flugvelli Evrópu (Heathrow) til Bandaríkjanna?

c) Hvað þykir forsvarsmönnum Isavia um þá stefnu Kaupmannahafnarflugvallar að láta ekki farþega fara úr skóm í vopnaleit og skima þar af leiðandi ekki skóna?

d) Flugmálastjórn hefur gefið það út að eftirlitið með skóm í Keflavík sé íþyngjandi fyrir farþega. Er Isavia á sömu skoðun? Sjá nánar hér.

Svar Friðþórs Eydal talsmanns Isavia:

Flugverndargæsla og vopnaleit til öryggis fyrir flugfarþega

Flugverndargæsla, þ.m.t. vopna- og sprengjuleit í farangri og á farþegum, miðast við að veita flugfarþegum tilhlýðilegt öryggi gegn ólögmætu athæfi, t.d. af hendi annarra flugfarþega.

Framkvæmdin snýst um að framfylgja þeim kröfum sem settar eru á flugrekendur og stjórnvöld varðandi öryggi flugfarþega en flugvallarekendur líkt og Isavia annast framkvæmdina fyrir þessa aðila.

Aðstaða er ekki fyrir hendi á Keflavíkurflugvelli til þess að hafa sérstaka skimunarstöð fyrir farþega til Ameríku og sérstöð fyrir Evrópu eins og víða er viðhaft annarsstaðar í Evrópu. Því er leitast við að sameina kröfurnar, þ.e. íslenskar reglugerðir um flugvelli og kröfur sem gerðar eru til flugfélaga sem fljúga til Bandaríkjanna, t.d. Icelandair og Delta. Isavia annast framkvæmd flugverndar fyrir fyrir þessa flugrekendur í samræmi við kröfur sem flugöryggisstofnun Bandaríkjanna setur þeim, t.d. um úrtaksskimun. Einu farþegarnir sem gætu þurft að fara úr skóm tvisvar við skimun eru farþegar á leið til Bandaríkjanna sem lenda í slíku handahófsúrtaki.

Kannanir á flæði farþega um skimunarstöðvar á Keflavíkurflugvelli sýna minni tafir minni óþægindi fyrir farþega þegar allir fara úr skóm til skimunar strax. Allflestir skór hafa að geyma málma, t.d. í sóla eða kósa fyrir reimar sem greinast í málmleitartækjum. Þegar það gerist verður að biðja farþegann að taka af sér skóna og senda hann aftur í gegnum málmleitarhliðið skólausan og skóna í gegnumlýsingu. Þessi framkvæmd tefur aðra farþega í röðinni og sífelld endurtekning eykur tafir og óþægindi þeirra enn frekar.

Einungis örfáir farþegar gera athugasemdir við það að fara úr skónum strax miðað við þegar valið er af handahófi. „ Af hverju ég en ekki hann“, var algeng spurning áður en þessi háttur var tekinn upp.

Framkvæmd flugverndarskimunar er í sífelldri endurskoðun. Fyrst of fremst verður að gæta þess að farið sé að settum reglum og að fyllsta öryggi farþega sé tryggt og jafnframt að þeir verði ekki fyrir töfum á áfangastað ef flugvernd þykir ekki fullnægjandi hérlendis. Auk þess er mjög mikilvægt að hafa þægindi farþega að leiðarljósi og að efla öryggistilfinningu þeirra.

Niðurstöður alþjóðlegra þjónustukannana sýna að farþegar á Keflavíkurflugvelli eru ánægðir með framkvæmd flugverndar, og frá því að reglan um að allir farþegar skuli taka af sér skóna hefur flugvöllurinn í tvígang verið útnefndur besti flugvöllur í Evrópu.“

Nýtt efni

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …