Það reyndi meira á þolinmæði farþega á Keflavíkurflugvelli á fyrri hluta mánaðarins en það hefur gert í vor.
Þriðju hverji ferð WOW air frá landinu seinkaði á fyrri hluta mánaðarins. Komutímar stóðust hins vegar oftar og í heildina mælist stundvísi fyrirtækisins 69 prósent á tímabilinu. Fyrsta flug WOW air fór í loftið um mánaðarmótin.
Iceland Express er áfram stundvísast af íslenskum félögunum þremur á Keflavíkurflugvelli. Hélt það áætlun í rúmlega níu af hverjum tíu skiptum. Frammistaða Icelandair var slakari nú en oft áður. Þrjár af hverjum fjórum ferðum félagsins héldu áætlun.
Í heildina var stundvísi á Keflavíkurflugvelli því lakari sl. hálfan mánuð en hún hefur verið að jafnaði frá því í febrúar.
Icelandair með langmestu umsvifin
Nú þegar aðal ferðamannatímabilið er hafið þá eykst umferðin um Keflavíkurflugvöll mikið. Icelandair fór t.a.m. tæpar 800 ferðir til og frá landinu á fyrstu fimmtán dögum mánaðarins. Það er tvöfalt meira en á fyrri hluta febrúarmánaðar. Icelandair er langstærsta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli og flaug fimm sinnum oftar en Iceland Express og WOW air samanlangt á fyrri hluta júnímánaðar.
Þess ber að geta að fyrsta ferð WOW air, sem farin var 31. maí, er tekin með í útreikninga Túrista núna.
Stundvísitölur Túrista, 1. til 15. júní (í sviga eru niðurstöður seinni hluta maí).
1. – 15. júní. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalbið alls |
Icelandair | 79% (91%) | 8 mín (2 mín) | 74% (71%) | 8 mín (5 mín) | 76% (81%) | 8 mín (4 mín) |
Iceland Express | 95% (100%) | 1 mín (0 mín) | 91% (97%) | 1 mín (1 mín) | 93% (99%) | 1 mín (0,5 mín) |
WOW air | 64% | 11 mín | 74% | 13 mín | 69% | 12 mín |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
Fylgstu með Túrista á Facebook
NÝJAR GREINAR: Borg í góðum tengslum við náttúruna – Á heimavelli: Ísold í New York
TENGDAR GREINAR: Iceland Express í góðum gír
Mynd: Gilderic/Creative Commons