Iceland Express er sjötta besta lággjaldaflugfélagið í álfunni samkvæmt niðurstöðum árlegrar könnunar í fluggeiranum.
Hið breska easyJet er það lággjaldaflugfélag sem stendur sig best í öllum heiminum að mati þeirra flugfarþega sem tóku þátt í árlegri könnun ráðgjafafyrirtækisins Skytrax á því hvaða félög skari fram úr. Iceland Express er í sjötta sæti listans yfir bestu lággjaldaflugfélögin í Evrópu.
Samkvæmt heimasíðu Skytrax fengust hátt í átján milljón svör í könnuninni. Athygli vekur að fjögur bestu félögin fljúga öll til Íslands.
10 bestu lággjaldaflugfélög Evrópu skv. könnun Skytrax
- easyJet
- Norwegian
- Niki
- German Wings
- Wizz air
- Iceland Express
- Blue Air
- Onur Air
- Pegasus Airlines
- Flybe
TENGDAR GREINAR: Keflavíkurflugvöllur meðal 100 bestu – Icelandair fær þrjár og Iceland Express tvær
Mynd: Iceland Express