Samfélagsmiðlar

Frítt net á hinum Norðurlöndunum

Það þarf ekki lengur að borga fyrir netaðgang á flugvöllum í Finnlandi og Svíþjóð. Þar með er þessi þjónusta ókeypis alls staðar á Norðurlöndunum nema hér á landi.

Það kostar töluvert að setja snallsíma og tölvur í samband við net í útlöndum. Það er því ánægjulegt að frændþjóðirnar veita nú ferðalöngum þessa þjónustu án endurgjalds. Danir og Norðmenn gáfu gjaldið eftir á síðasta ári en nýverið bættust Svíar og Finnar við. Það eru því aðeins flugfarþegar hér á landi sem þurfa að borga fyrir netaðgang. Nemur gjaldið 490 krónum á klukkustund Keflavíkurflugvelli.

Líka síðust með „app“

Snjallsímaforrit flugstöðva eru orðin sjálfsagður hlutur víða í Evrópu. Með þeim geta farþegar m.a. nálgast upplýsingar um breytingar á ferðaáætlunum og fengið aðstoð við að rata um flugstöðvar. Forsvarsmenn Kaupmannahafnarflugvallar hafa nýtt sér þessa tækni um árabil með góðum árangri og kollegar þeirra í Skandinavíu og Finnlandi hafa einnig tekið tækninni fagnandi. Ekkert snjallsímaforrit hefur hins vegar litið dagsins ljós frá Keflavíkurflugvelli en samkvæmt upplýsingum þaðan mun málið vera til skoðunar og einnig gjaldið vegna netaðgangs.

TENGDAR GREINAR: Keflavíkurflugvöllur á meðal 100 bestu
NÝJAR GREINAR: Fjör á fjórtánda stræti í Washington

Mynd: Cph

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …