Samfélagsmiðlar

Keyptu ekki flugrekstur að mati Flugmálastjórnar

Forsvarsmenn WOW air segjast hafa yfirtekið flugrekstur Iceland Express. Þetta er ekki rétt samkvæmt tilkynningu Flugmálastjórnar. WOW air getur þó kallað sig flugfélag.

Aðeins þeir sem reka loftför í atvinnuskyni geta kallað sig flugrekendur samkvæmt tilmælum Flugmálastjórnar sem birt voru á föstudag, í kjölfar yfirtöku WOW air á Iceland Express. Þar segir jafnframt: „Iceland Express og WOW air hafa vissulega stuðlað að reglubundnum flutningi á fólki og vörum til og frá Íslandi og aukinni samkeppni, en þeir hafa til þess þurft að fá flugrekenda frá Evrópska efnahagssvæðinu með tilskilin flugrekstrarleyfi til að annast flugið fyrir sig.“

Í tilkynningu WOW air vegna kaupanna segir hins vegar að félagið hafi „…tekið yfir allan flugrekstur og áætlunarflug Iceland Express.“ Forsvarsmenn WOW air og Flugmálastjórnar eru því ekki sammála um skilgreiningu á orðinu flugrekstur.

Öllum frjálst að segjast vera flugfélag hér á landi en ekki í Noregi

Líkt og Túristi sagði frá nýverið þá hefur norska loftferðaeftirlitið bannað nýju þarlendu fyrirtæki að kalla sig flugfélag. Markmið þessa aðila er að bjóða upp á áætlunarflug með leiguvélum líkt og WOW air og Iceland Express hafa gert. Íslensk stjórnvöld eru hins vegar ekki til í að ganga jafn langt og þau norsku því í fyrrnefndri tilkynningu Flugmálastjórnar segir: „…hugtakið flugfélag ekki skilgreint í lögum um loftferðir né kemur fyrir í reglugerðum byggðum á þeim lögum. Hvaða aðili sem er getur því í raun nefnt starfsemi sína flugfélag og ferðaskipuleggjendurnir Iceland Express og WOW air hafa gert það“.

Fylgstu með Túrista á Facebook

TENGDAR GREINAR: Mega ekki kalla sig flugfélag
NÝJAR GREINAR: Airberlin dregur úr Íslandsflugi –  Frítt á netið í Berlín

Mynd: Víkurfréttir

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …