Samfélagsmiðlar

Isavia tekur yfir bílastæðin við Leifsstöð

Frá og með áramótum mun Isavia taka við afgreiðslu á bílastæðunum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Þrátt fyrir að tvö rútufyrirtæki sinni áætlunarferðum milli höfuðborgarinnar og Keflavíkurflugvallar velja átta af hverjum tíu lesendum Túrista að keyra sjálfir í flugið, samkvæmt lesendakönnun síðunnar. Rekstur stæðanna hefur verið í höndum fyrirtækisins Icepark síðan sumarið 2009 en um áramót tekur Isavia umsjónina yfir. En félagið á og rekur þau sem og allan rekstrarbúnaður þeirra.

Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir að með breytingunum nái félagið að samnýta mannafla félagsins á flugstöðinni og nái þannig fram rekstrarhagræðingu. „Auk þess veitir breytingin félaginu fullan sveigjanleika í notkun landrýmisins eftir því sem á þyrfti hugsanlega að halda við endurbætur á flugstöðvarmannvirkjum án þess að þurfi að taka tillit til samninga um afgreiðsluna við annan aðila“, segir jafnfram í svari Friðþórs.

Ódýrari en í nágrannalöndunum

Í dag kostar það 800 krónur að geyma bíl í sólarhring á stæðunum við flugstöðina sem er mun ódýrara en það kostar að leggja við stóru flugvellina á Norðurlöndum. Þannig kostar dagurinn á stæði við Kaupmannahafnarflugvöll á bilinu 100 til 300 danskar (2150 til 6500 íslenskar) og álíka við Arlanda í Stokkhólmi. Sólarhringsleiga á ódýrasta stæðinu við Gardermoen í Osló kostar jafnvirði 3300 íslenskra króna.

Bílaumferð takmarkar flugumferð

Hvort draga myndi úr umferð út á Keflavíkurflugvöll ef verðin myndu hækka skal ósagt látið en í Stokkhólmi standa flugmálayfirvöld frammi fyrir töluverðum vanda vegna vinsælda einkabílsins meðal farþega á Arlanda flugvelli. Kolefnisútblásturinn frá þessari umferð er það mikill að brátt má ekki auka flugumferðina frá Arlanda fyrr en umhverfisvænni samgöngur, eins og lestir, hafa náð meiri útbreiðslu meðal farþeganna.

.

Nýtt efni

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …