Samfélagsmiðlar

Næstum allir með töskur hjá Icelandair en helmingur hjá WOW

Það getur kostað allt að 3600 krónur að innrita eina tösku í flug frá Íslandi. Sum félög rukka aukalega fyrir farangur en önnur ekki. Hlutfall farþega sem ferðast aðeins með handfarangur er gjörólíkt hjá Icelandair og WOW air.

Níu af hverjum tíu farþegum Icelandair ferðast með meira en handfarangur en aðeins helmingur þeirra sem fljúga með WOW air skilar af sér tösku við innritun samkvæmt upplýsingum frá félögunum. Hlutfallið hjá WOW air breyttist lítið eftir að fyrirtækið tók upp farangursgjald sem nemur 2900 krónum fyrir hvern fluglegg.

Jólagjöf með eða án farangurs

Sex af þeim ellefu félögum sem halda uppi millilandaflugi héðan næsta sumar rukka fyrir farangur eins og greint var frá hér á síðunni um daginn (sjá hér). Sú staðreynd gerir verðsamanburð á fargjöldum snúnari en áður og flækir líka málin fyrir þá sem ætla að gefa jólagjafabréf félaganna í næsta mánuði. Því ef helmingur farþega WOW air ferðast með meira en handfarangur má búast við því að álíka hátt hlutfall þeirra sem fær gjafabréf félagsins á aðfangadagskvöld þurfi að bæta 5800 krónum við þegar ferðin er bókuð. Ódýrasta jólagjafabréf WOW air kostar 22.900 krónur en 31.900 krónur hjá Icelandair.

Enn fleiri gjöld

Það er ekki aðeins töskugjald sem bætist við hjá meginþorra flugfélaganna hér á landi. Sum þeirra taka þóknun fyrir greiðslur með kreditkortum og innheimta bókunargjald. Eins þurfa farþegar sem vilja tryggja sér ákveðin sæti að borga 650 til 2990 krónur fyrir þá þjónustu hjá sjö af félögunum ellefu. Ef það færist í aukana að fólk taki frá sæti mun það valda því að fjölskyldur og hópar, sem vilja sitja saman í vélinni, komast ekki hjá því að gera það einnig og borga fyrir það.

NÝJAR GREINAR: WOW ódýrast en easyJet langdýrastMesta og minnsta sætaplássið um borð
HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu og bókaðu besta kostinn

Mynd: geishaboy500/Creative Commons

Nýtt efni
Veitingaþjónusta

Íslenskt atvinnulíf er mjög háð aðfluttu vinnuafli. Það á ekki síst við um ferðaþjónustuna. Umsvif hennar væru mun minni ef ekki kæmu hingað útlendingar þúsundum saman til starfa á ári hverju. Samkvæmt Hagstofunni voru 35.233 starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi í júní 2023. Þar af voru um 15.500 útlendingar.  Heildartalan yfir þá sem …

Áætlunarflug milli Akureyrar og London hófst í lok október og síðan þá hafa þotur Easyjet flogið þessa leið tvisvar í viku en engin talning fer fram á fjölda ferðamanna á Akureyrarflugvelli öfugt við það sem tíðkast á Keflavíkurflugvelli. Til að meta fjölda breskra ferðamanna í beina fluginu þarf því að styðjast við gistináttatölur Hagstofunnar en …

Frakkar fjölmenna til Íslands allt árið um kring og í fyrra flugu frá Keflavíkurflugvelli 99 þúsund farþegar með franskt vegabréf. Það jafngildir því að fimm af hverjum 100 ferðamönnum hér á landi séu franskir enda eru flugsamgöngur milli Íslands og Parísar tíðar og stefnir í að þeir verði óvenju miklar næsta vetur. Það eru því …

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …