Það kostar um fimmtungi minna að fljúga til höfuðborgar Danmerkur í vor en til þeirra bresku. EasyJet er áfram mun dýrari kostur en íslensku félögin.

Það er hægt að fá far til Kaupmannahafnar fyrir innan við 35 þúsund krónur upp úr miðjum mars. Á sama tíma kostar lægsta fargjaldið til Lundúna um sjö þúsund krónum meira eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Það er WOW air sem býður best til Kaupmannahafnar í þeim tveimur vikum í janúar og mars sem Túristi kannaði að þessu sinni. WOW er einnig ódýrasti kosturinn til heimaborgar Elísabetu drottningar í mars.
Icelandair lækkar til London
Þegar Túristi kannaði verð á flugi í viku 4 (21.-27.jan.) í október sl. þá kostaði farið með Icelandair a.m.k. 40.780 krónur. Þeir sem bóka núna fá það hins vegar á 34.370 krónur ef flogið er til Gatwick flugvallar. Hvorki WOW air né easyJet bjóða eins vel í síðustu viku janúar.
Ódýrustu farmiðarnir, báðar leiðir, til London í viku 12 (18-24.mars):
Flug til London (verð 26.des) | Brottför í viku 12 2013 |
easy Jet* | 56.444 kr. |
Icelandair | 43.400 kr. |
WOW air* | 41.825 kr. |
Flug til Kaupmannahafnar (verð 26.des) | Brottför í viku 12 2013 |
Icelandair | 39.220 kr. |
WOW air* | 34.560 kr. |
EasyJet ennþá miklu dýrari en hinir
Líkt og svo oft áður þá koma fargjöld easyJet ekki vel út úr samanburði við verð Icelandair og Wow air. Í viku 4 munar til dæmis um tuttugu og tvö þúsund krónum á ódýrasta fari breska félagsins og Icelandair. Í mars munar að lágmarki þriðjungi á easyJet og hinum. Breska félagið stendur því varla undir nafninu lággjaldaflugfélag hér á landi. Þess ber þó að geta að í verðkönnunum Túrista er gert ráð fyrir að lágmarksdvöl í útlöndum sé tveir sólarhringar en easyJet flýgur aðeins hingað þrisvar í viku og því um fá flug að velja í samanburði við hin félögin.
WOW lækkar um fjórðung
Þegar þróun á fargjöldum til Kaupmannahafnar í viku 4 eru skoðuð þá sést að WOW air hefur lækkað verðið hjá sér um 26,9 prósent frá því í október og Icelandair hefur lækkað farið til London um 15,9 prósent. Þetta eru enn ein dæmin um að það borgar sig ekki alltaf að bóka flug með miklum fyrirvara.
Lægstu fargjöld, báðar leiðir, til London í viku 4 (21.-27.jan) ef bókað með tólf vikna fyrirvara og fjögurra vikna.
London | Bókað 26.des | Bókað 30. okt | Breyting |
easyJet* | 56.107 kr. | 53.567 kr. | +4,7% |
Icelandair | 34.370 kr. | 40.780 kr. | -15,7% |
WOW air* | 39.825 kr. | 37.825 kr. | +5,3% |
Lægstu fargjöld, báðar leiðir, til Kaupmannahafnar í viku 4 (21.-27.jan) ef bókað með tólf vikna fyrirvara og fjögurra vikna.
Kaupmannahöfn | Bókað 26.des | Bókað 30. okt | Breyting |
WOW air* | 32.560 kr. | 44.560 kr. | -26,9% |
Icelandair | 39.220 kr. | 39.180 kr. | +0.01% |
Í þessum mánaðarlegu könnunum Túrista eru fundin lægstu fargjöldin, báðar leiðir, innan ákveðnar viku hjá hverju félagi fyrir sig. Gert er ráð fyrir að lágmarksdvöl í útlöndum sé tveir sólarhringar og því stundum úr fáum flugum að velja, sérstaklega hjá easyJet. Farangurs- og kreditkortagjöld eru tekin með í reikninginn (sjá samantekt yfir aukagjöld hér)
*easy Jet og WOW air rukka fyrir innritaðan farangur. Gjaldi fyrir eina tösku er bætt við fargjaldið í samanburðinum. Miðað er við gengi evru í dag.
Fylgstu með Túrista á Facebook
TILBOÐ: 10% afsláttur á gistingu í London – Frír morgunmatur í Kaupmannahöfn
HÓTEL: Gerðu verðsamanburð og bókaðu besta kostinn
Mynd: Copenhagen Media Center