Líkt og í fyrri hluta mánaðarins voru nærri engar tafir á ferðum til og frá landinu seinni tvær vikur nýliðins mánaðar. Á sama tíma í fyrra var staðan allt önnur.
Þeir sem flugu til útlanda seinni tvær vikurnar í nóvember fóru langflestir í loftið á réttum tíma því 96 prósent af brottförum WOW air stóðust áætlun og hjá Icelandair var hlutfallið 94 prósent. Á sama tíma í fyrra hélt aðeins helmingur ferða Iceland Express áætlun og hjá Icelandair seinkaði einni af hverjum fjórum.
Sem betur fer hefur stundvísin á Keflavíkurflugvelli batnað mikið frá því í fyrra því miklar seinkanir geta reynst farþegum dýrkeyptar. Sérstaklega þeim sem þurfa að ná tengiflugi. Því sá sem missir af seinna fluginu vegna seinkunar á því fyrra þarf að kaupa nýjan miða nema öll flugin hafi verið keypt á einum miða hjá t.d. Icelandair eða SAS. Þeir sem það gera eru nefnilega á ábyrgð flugfélagsins sem seldi miðana.
LESTU LÍKA: Tengiflug í súginn vegna seinkunar
Icelandair fjölgar ferðum um fjórðung
Brottfarir Icelandair frá Keflavík á seinni hluta nóvember í fyrra voru 185 talsins en 234 núna. Aukningin nemur 26 prósentum. Iceland Express stóð fyrir 40 ferðum til útlanda seinni tvær vikurnar í nóvember 2011 en brottfarir á vegum WOW air voru 26 talsins á sama tíma í ár.
Líkt og kom fram á hér síðunni á mánudag þá stóð Icelandair undir 83% af öllum ferðum til og frá landinu í nóvember (sjá hér).
Stundvísitölur seinni hluta nóvember 2012
16.-30.nóv. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalseinkun alls | Fjöldi ferða |
Icelandair | 94% | 1 mín | 85% | 2 mín | 90% | 1,5 mín | 467 |
WOW air | 96% | 1 mín | 92% | 4 mín | 94% | 2,5 mín | 50 |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
Fylgstu með Túrista á Facebook
HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu og bóðkaðu besta kostinn
NÝJAR GREINAR: Hér er best að borða fyrir brottför – Næstum allir með töskur hjá Icelandair en helmingur hjá WOW