Samfélagsmiðlar

Farþegum fjölgaði mest hér á landi

Það fóru nærri 2,4 milljónir farþega til og frá Keflavíkurflugvelli á síðasta ári og fjölgaði þeim um nærri þrettán prósent milli ára. Stærstu flugvellir Norðurlandanna geta ekki státað af álíka aukningu þó þeir hafi allir bætt við sig á árinu sem leið.

Kaupmannahafnarflugvöllur ber höfuð og herðar yfir hina flugvellina á Norðurlöndunum. Um hann fóru t.a.m. nærri tíu sinnum fleiri farþegar en um Keflavíkurflugvöll í fyrra, eða rúmar 21 milljón. Arlanda í Stokkhólmi er næststærstur með um fimmtán milljónir farþega en þess ber að geta að hver farþegi er tvítalinn því fólk er talið við komu og brottför. Farþegar í innanlandsflugi eru ekki teknir með í samaburðinn.

Flugvellirnir fimm bættu sig allir á síðasta ári en stærsta stökkið tók Keflavíkurflugvöllur líkt og í fyrra. Helsinki var með næstmestu aukninguna árið 2011 en nú stóð fjöldinn í stað á stærsta fluvelli Finna eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Fjöldi farþega á aðalflugvöllum Norðurlandanna (innanlandsflug ekki meðtalið)

Fj. farþega 2012Breyting milli ára
Kaupmannahafnarflugvöllur21.401.0545,3%
Arlanda Stokkhólmi14.800.0004%
Vantaa Helsinki12.165.0640,5%
Gardermoen Osló11.796.6476,1%
Keflavíkurflugvöllur2.380.21412,7%

 

 

 

 

 

Tvöfalt fleiri innanlands frá Stokkhólmi en fara í heildina frá Keflavík

Fyrir utan flug Icelandair milli Keflavíkur og Akureyrar á sumrin þá fara nær eingöngu farþegar á leið til og frá landinu um Leifsstöð. Þessu er öfugt farið meðal frændþjóðanna því á stærstu flugvöllum þeirra er líka miðstöð innanlandsflugs. Í Stokkhólmi fóru í heildina tæpar 20 milljónir farþega um Arlanda flugvöll því innanlandsfarþegar voru um fimm milljónir talsins eða tvöfalt fleiri en ferðuðust um Keflavíkurflugvöll á síðasta ári.

SJÁ EINNIG: Flugrútan færð frá Leifsstöð

Minna vægi íslenskra farþega

Ferðum Íslendinga til útlanda fjölgaði um fimm af hundraði í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Sú bæting er töluvert minni en aukningin var í heildina á Keflavíkurflugvelli og því hefur hlutur íslenskra farþega dalað.

NÝJAR GREINAR: Lægstu fargjöldin þar sem farþegarnir hafa ekki val
TILBOÐ: Sérkjör á gistingu í London, Kaupmannahöfn, Berlín og Edinborg
HÓTEL: Smelltu til að finna hagstæðustu gistinguna

Mynd: Wikicommons

Nýtt efni
MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …

MYND: ÓJ

Kínverskir ferðamenn hafa verið töluvert áberandi í Reykjavík og víðar um land í vor. Auðvitað er fólk af kínverskum uppruna búsett um allan heim og eitthvað af því fer í Íslandsferðir en þeim hefur snarfjölgað sem koma hingað alla leið frá Alþýðulýðveldinu Kína. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli komu hingað í marsmánuði 8.642 Kínverjar og …

Brasilíski flugframleiðandinn Embraer greinir frá góðum gangi í pöntunum og afhendingu véla á fyrstu mánuðum ársins. Mestur var fögnuðurinn í höfuðstöðvunum í São José dos Campos þegar American Airlines staðfesti kaup á 90 farþegaþotum af gerðinni E175, sem verða notaðar í innanlandsflugi og eru hluti af stórri endurnýjun flugflota félagsins. E175 eru meðaldrægar vélar, oftast …

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …