Stundvísitölur: 5 mínútna seinkun að jafnaði

klukka

Brottfarir héldu oftar áætlun en komur á fyrstu tveimur vikum ársins. Í heildina voru ferðirnar til og frá Keflavíkurflugvelli rúmlega fimm hundruð og var meðaltöfin 5 mínútur.

Rúmlega átta af hverjum tíu farþegaþotum fóru í loftið á réttum tíma á fyrri hluta mánaðarins. Þær skiluðu sér hinsvegar ekki eins oft heim á auglýstum tíma eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Flugvél sem seinkar um korter eða minna telst vera á réttum tíma í fluggeiranum. Þegar tekið hefur verið tillit til þess þá seinkaði þessum 517 ferðum Icelandair og WOW að jafnaði um fimm mínútur samkvæmt útreikningum Túrista.

Stundvísitölur fyrri hluta janúar 2013

1.-15.jan. Hlutfall brottfara á tíma Meðalseinkun brottfara Hlutfall koma á tíma Meðalseinkun koma Hlutfall ferða á tíma Meðalseinkun alls Fjöldi ferða
Icelandair 84% 5 mín 78% 5 mín 81% 5 mín 448
WOW air 91% 5 mín 79% 6 mín 86% 5 mín 69

Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.

Fylgstu með Túrista á Facebook

HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu og bókaðu besta kostinn
TILBOÐ: 10% afsláttur á gistingu í LondonÓkeypis morgunmatur í Kaupmannahöfn

Mynd: Gilderic/Creative Commons