Brottfarir héldu oftar áætlun en komur á fyrstu tveimur vikum ársins. Í heildina voru ferðirnar til og frá Keflavíkurflugvelli rúmlega fimm hundruð og var meðaltöfin 5 mínútur.
Rúmlega átta af hverjum tíu farþegaþotum fóru í loftið á réttum tíma á fyrri hluta mánaðarins. Þær skiluðu sér hinsvegar ekki eins oft heim á auglýstum tíma eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Flugvél sem seinkar um korter eða minna telst vera á réttum tíma í fluggeiranum. Þegar tekið hefur verið tillit til þess þá seinkaði þessum 517 ferðum Icelandair og WOW að jafnaði um fimm mínútur samkvæmt útreikningum Túrista.
Stundvísitölur fyrri hluta janúar 2013
1.-15.jan. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalseinkun alls | Fjöldi ferða |
Icelandair | 84% | 5 mín | 78% | 5 mín | 81% | 5 mín | 448 |
WOW air | 91% | 5 mín | 79% | 6 mín | 86% | 5 mín | 69 |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
Fylgstu með Túrista á Facebook
HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu og bókaðu besta kostinn
TILBOÐ: 10% afsláttur á gistingu í London – Ókeypis morgunmatur í Kaupmannahöfn
Mynd: Gilderic/Creative Commons