Ekkert fer eins í taugarnar á flugfarþegum eins og að þurfa að sitja við hliðina á óskemmtilegu fólki. Lítið fótapláss fer einnig fyrir brjóstið á mörgum.
Það getur reynt á geðið að sitja við hliðina á leiðindaskjóðu með munnræpu í háloftunum. Frændur okkar í Skandinavíu eru alla vega ekki í vafa um að þess háttar sessunautur er það sem pirrar þá mest við flugferðir. Seinkanir á flugi og farangri koma þar á eftir eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan sem er byggð á könnun British Airways á meðal Norðmanna, Dana og Svía.
Þrengslin mörgum erfið
Það getur munað tíu sentimetrum á bilinu milli sætisraða í þotunum sem fljúga til og frá Íslandi. Í könnun sem Túristi gerði nýverið kom í ljós að bilið er minnst hjá Transavia eða 71 cm. Í sumum röðum hjá Wow air er bilið einnig svona lítið en til samanburðar má nefna að hjá Ryanair eru 76 cm á milli sæta en það félag er betur þekkt fyrir lág verð en þægindi. Í könnun British Airways kom í ljós að lítið bil á milli sæta fer mest í taugarnar á sjötta hverjum farþega.
Þau atriði sem pirra fljúgandi Skandinava mest:
- Leiðinlegur sessunautur: 20,5%
- Seinkun á flugi: 19,5%
- Seinkun á farangri: 19%
- Lítið fótapláss: 17%
- Að millilenda: 7%
- Ókyrrð í loftinu: 5,5%
- Borga fyrir veitingar: 5%
- Aðrir farþegar: 4%
- Annað: 2,5%
VILTU FRÍAN MORGUNMAT Í KAUPMANNAHÖFN?
NÝJAR GREINAR: Meira en 60 ferðir til 26 landa í 5 heimsálfum
Mynd: SAS