Það gekk næstum snurðulaust að halda áætlun ferða frá landinu seinni tvær vikurnar janúar.
Það eru góðar fréttir fyrir íslenska túrista að bæði Icelandair og Wow air fara í loftið frá Keflavíkurflugvelli á réttum tíma í nær öllum tilfellum þessa dagana.
Seinni hluta janúarmánaðar voru brottfarir samkvæmt áætlun í meira en níu af hverjum tíu skiptum. Meðaltöfin var um þrjár mínútur. Það þurftu því fáir að eyða óþarfa tíma í Leifsstöð nema kannski þeir sem fóru út á völl til að sækja ættingja því komutímar héldu ekki eins oft eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Stundvísitölur seinni hluta janúar 2013
16.-31.jan. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalseinkun alls | Fjöldi ferða |
Icelandair | 92% | 3 mín | 80% | 5 mín | 86% | 4 mín | 431 |
WOW air | 93% | 2,5 mín | 87% | 7,5 mín | 90% | 5 mín | 59 |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
Fylgstu með Túrista á Facebook
HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu og bókaðu besta kostinn
TILBOÐ: 10% afsláttur á gistingu í London – Ókeypis morgunmatur í Kaupmannahöfn
Mynd: Gilderic/Creative Commons