Í þessum stórbæjum geturðu stungið þér í mannhafið eftir strandferð í miðri borginni.
Þú getur flogið beint til þessara sex borga frá Keflavík og auðveldlega sameinað borgar- og sólarlandaferðina.
Barcelona
Önnur fjölmennasta borg Spánar er ljómandi fínn strandbær. Barceloneta hverfið liggur að Miðjarðarhafinu og þar kæla borgarbúa sig niður í bláum sjónum og njóta dagsins í ró og næði á ströndinni. Það er gott úrval af matsölustöðum í Barceloneta og svo tekur aðeins hálftíma að rölta á Römbluna fyrir þá sem vilja komast í stórborgarstemningu.
Berlín
Vötnin og áin Spree sjá um að kæla íbúa Berlínar niður á sumrin. Við Wannsee er að finna stærstu baðströnd Evrópu sem er inn í miðju landi og við Weissensee fer vel um börn. Badeschiff laugin, út á miðri Spree, er líka vinsæl þegar hitinn fer langt yfir tuttugu gráðurnar.
Kaupmannahöfn
Amager Strand er manngerð strönd, ekki svo langt frá Kastrup flugvelli. Þar er nægt pláss fyrir þá sem vilja sóla sig eða baða í volgum sjónum. Það er minnsta mál að taka metró þangað út eftir. Við Islands brygge er svo eitt af nýjustu kennileitum borgarinnar, Havnebadet. Þar er hægt að stinga sér af 5 metra háum palli eða busla í barnalauginni. Við Klampenborg er líka ljómandi fín strönd, Bellevue. Þar geta fastakúnnar í Epal sest inn á Arne Jacobsen veitingastaðinn á milli boltaleikja í sandinum.
Stokkhólmur
Þeir sem heimsækja Feneyjar norðursins á sumrin geta valið úr nokkrum stöðum til að svamla í svalandi vatni. Suðaustur af miðborginni er það hinn græni Långholmen sem lokkar til sín Stokkhólmsbúa á góðviðrisdögum. Á hólmanum er hægt að breiða úr sér á grasinu og fylgjast með alls kyns bátum og skútum sigla framhjá. Í norðurhluta borgarinnar er suðrænu stemninguna að finna við Brunnsviken vatnið sem liggur meðfram hinum ægifagra Haga garði, þar hefur krónprinsessan býr. Við Frescati Haga busla börn og á klöppunum allt í kring sóla þeir sig sem vilja njóta blíðunnar í friði og ró.