Flugrútan fær að leggja við flugstöðina á ný

Samkeppniseftirlitið leggst gegn einkaleyfi á akstri til og frá Keflavíkurflugvelli. Farþegar á leið í bæinn þurfa ekki lengur að ganga langa leið til að komast um borð í rútu.
Fyrir ári síðan var lokað fyrir bílaumferð við anddyri komusalar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Síðan þá hafa þeir sem ætla með rútu heim frá Keflavíkurflugvelli þurft að ganga yfir bílastæðin, við komusal flugstöðvarinnar, til að komast um borð. Í alls kyns veðrum og á öllum tímum sólarhringsins hafa rútufarþegar neyðst til að fara þessa leið með farangurinn sinn. Á sama tíma hefur rútustæði við enda flugstöðvarinnar verið ónotað. Það er ætlað þeim aðila sem fær einkaleyfi á akstri milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins. Útboð á sérleyfinu er hins vegar í uppnámi eftir að Samkeppniseftirlitið ályktaði að hagsmunir almennings af skilvirkri samkeppni í fólksflutningum séu fyrir borð bornir með einkaleyfinu og ferðaþjónustunnii um leið bakað alvarlegt tjón, eins og það er orðað í úrskurði eftirlitsins.

Fá að nota stæðið þar til að niðurstaða fæst

Það eru Allrahanda og Kynnisferðir sem bjóða upp á áætlunarferðir milli höfuðborgarinnar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Nú hafa rútur þeirra fengið aðgang að væntanlegu einkastæði sérleyfishafans og segir Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, að sá háttur verði hafður á þar til að niðurstaða fæst í útboðsmálinu.

Líkt og Túristi greindi nýverið frá þá íhugar þriðja fyrirtækið að hefja áætlunarferðir á þessari leið ef ekkert verður úr sérleyfishugmyndum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Fylgstu með Túrista á Facebook

TILBOÐ: Viltu afslátt af gistingu, frían morgunmat eða ókeypis freyðivín upp á herbergi?
HÓTEL: Einföld leit að ódýrum hótelum út um allan heim

Mynd: Wikicommons