Seinni hluta júlímánaðar voru mun minni tafir á millilandaflugi en fyrri tvær vikurnar. Rúmlega níu af hverjum tíu ferðum Wow Air voru á tíma.
Farþegar á Keflavíkurflugvelli komust oftar til og frá landinu á réttum tíma á seinni hluta júlímánaðar en á þeim fyrri. Hjá Icelandair batnaði stundvísin mikið því fyrri tvær vikurnar voru þrjár af fjórum ferðum á áætlun en hlutfallið var 85% á seinni hlutanum. Nær allar brottfarir Wow Air voru á tíma.
Eins og svo oft áður seinkar komum til Keflavíkur mun meira en brottförum. En komutímar eru oftar notaðir til að skera úr um stundvísi flugfélaga en brottfarartímar.
Eins og áður birtir Túristi aðeins upplýsingar um stundvísi þeirra félaga sem fljúga oftast héðan yfir árið.
Stundvísitölur Túrista – seinni hluta júlí 2013
16.-31.júlí. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalseinkun alls | Fjöldi ferða |
Icelandair | 88% | 6 mín | 82% | 8 mín | 85% | 7 mín | 1011 |
WOW air | 98% | 0,5 mín | 84% | 2 mín | 91% | 1 mín | 233 |
Easy Jet | 77% | 11 mín | 77% | 10 mín | 77% | 10 mín | 34 |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfarartímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
Fylgstu með Túrista á Facebook
HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu og bókaðu besta kostinn
TILBOÐ: Ókeypis morgunmatur í Kaupmannahöfn
Mynd: Gilderic/Creative Commons