Það færist í vöxt að flugfarþegar þurfi að borga sérstaklega fyrir þjónustu sem áður var innifalin í fargjaldinu. Túristi kynnti sér gjöldin sem flugfarþegar þurfa nú að taka með í reikninginn.
Það verða fimm félög sem bjóða upp á reglulegt áætlunarflug frá Keflavík í vetur. Þrjú þeirra rukka farþega aukalega fyrir innritaðan farangur og val á sæti. Hægt er að komast hjá því að greiða fyrir þetta tvennt með því að ferðast með lítinn farangur og láta vera að taka frá sérstakt sæti. Það er þó ólíklegt að þeir sem ferðast með öðrum vilji taka áhættuna á því að vera settir í sæti fjarri förunautunum. Sérstaklega þeir sem ferðast með börn. Á heimasíðu breska lággjaldaflugfélagsins Easy Jet kemur fram að sætum sé úthlutað af handahófi en reynt sé að láta fólk sem ferðast saman vera hlið við hlið.
Það er því öruggast að borga fyrir þjónustuna. Hjá Easy Jet er sætunum skipt upp í nokkra verðflokka og kosta þau frá tæpum 650 krónum. Hjá Wow Air eru hefðbundin sæti á 995 krónur en þau sem eru með meira fótarými eru á 2995 krónur.
Íslensk debetkort duga sjaldan á netinu
Farþegar hér á landi komast ekki hjá kreditkortaþóknun erlendu flugfélaganna því íslensk debetkort eru ekki með númeraröð á framhlið né þriggja stafa öryggisnúmer. Það er því ekki hægt að greiða með þeim á netinu. Debetkort sem gefin eru út af bönkum í nágrannalöndunum eru hins vegar ekki svona takmörkuð. Þeir sem bóka far héðan með Norwegian til Oslóar þurfa því að borga aukalega rúmar átta hundruð krónur og hjá Easy Jet leggst 2,5 prósenta kreditkortagjald ofan á farmiðaverðið.
Bókunargjaldið eru oftast innifalin en hjá Wow Air bætist það við fargjöldin og nemur 995 krónum.
Töskurnar dýrar
Það eru sennilega óhætt að fullyrða að búðaráp tilheyri ferðalögum til útlanda hjá mörgum lesendum. Það er því ekki víst að handfarangur dugi alltaf og þeir sem ætla að dvelja úti í viku eða meira komast varla hjá því að taka með sér stærri tösku. Það kostar ekki aukalega að innrita farangurinn hjá Icelandair og SAS en hjá hinum þremur félögunum þarf að borga fyrir þjónustuna. Norwegian rukkar minnst eða rúmar fjórtán hundruð krónur og hjá Easy Jet ræðst verðið meðal annars af eftirspurn og er því breytilegt eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Hjá Wow Air borga farþegarnir hins vegar 3495 krónur fyrir eina innritaða tösku en farangursgjald félagsins hækkaði nýverið úr 2900 krónum.
1 taska aðra leið (ef bókað á neti) | Val á sæti | Kreditkortagjald | Bókunargjald | |
Easy Jet | 2749-3477 kr. (17-21,5 evrur) | 547-2910 kr.(4-17,99 evrur) | 2,5% | 0 kr. |
Icelandair | 0 kr. | 0 kr. | 0 kr. | 0 kr. |
Norwegian | 1416 kr. (69 norskar) | 1211 kr. (59 norskar) | 821 kr. (40 norskar) | 0 kr. |
SAS | 0 kr. | 0 kr. | 0 kr. | 0 kr. |
Wow Air | 3495 kr. | 995 eða 2995 kr. | 0 kr. | 995 kr. |
VILTU 15% AFSLÁTT AF GISTINGU Í KAUPMANNAHÖFN?
Greinin birtist fyrst í Fréttatímanum
Mynd: Norwegian