Umsvifamestu félögin á Keflavíkurflugvelli

Icelandair og Wow Air stóðu fyrir rúmlega átta af hverjum tíu ferðum frá Keflavíkurflugvelli í ágúst.

Tvær af hverjum þremur vélum sem tóku á loft frá Keflavíkurflugvelli í ágúst voru á vegum Icelandair. Ferðir Wow Air voru nær jafnmargar og hinna fjórtán flugfélaganna sem héldu uppi áætlunarflugi frá Keflavík í ágúst samkvæmt talningu Túrista.

Icelandair og Wow Air voru langatkvæðamest í flugi til og frá landinu í sumar og vægi þeirra eykst enn frekar næstu mánuði því erlendu félögin láta flest duga að fljúga hingað á sumrin. Það er þó útlit fyrir að ferðum Easy Jet fjölgi því Viðskiptablaðið hefur það eftir framkvæmdastjóra félagsins að það komi til greina að fjölga áfangastöðum félagsins héðan.

Í vetur verður boðið upp á beint flug til 33 áfangastaða frá Keflavík.

Vægi fimm umsvifamestu félaganna á Keflavíkurflugvelli í ágúst, í brottförum talið:

  1. Icelandair: 66,8%
  2. Wow air: 15,3%
  3. Air Berlin: 3,2%
  4. Easy Jet: 2,4%
  5. SAS: 2%

Fylgstu með Túrista á Facebook

TILBOÐ: 15% afsláttur af gistingu í Kaupmannahöfn
BÍLALEIGUBÍLL: Rentalcars lofar lægsta verðinu

Mynd: Isavia