Samfélagsmiðlar

Lufthansa gefur eftir flugið til Íslands

Stærsta flugfélag Þýskalands og eitt það stærsta í heimi hættir að fljúga hingað til lands. Dótturfélag fyrirtækisins tekur við keflinu.

Undanfarin ár hefur þýska flugfélagið Lufthansa flogið beint til Keflavíkur frá Berlín, Dusseldorf og Hamburg í Þýskalandi. Flug til Íslands heyrir þó brátt sögunni til hjá félaginu. Það staðfestir talskona félagsins við Túrista. Hún segir að félagið ætli að einbeita sér að flugi til og frá Frankfurt og Munchen en láta dótturfélagi Lufthansa, German Wings, eftir allar aðrar flugleiðir. Það er ekki á döfinni hjá stjórnendum Lufthansa að hefja flug hingað frá Frankfurt eða Munchen.

German Wings verður eitt það umsvifamesta í Keflavík

Með þessum breytingum fjölgar flugleiðum lággjaldaflugfélagins German Wings frá Íslandi úr tveimur í fimm. Því auk flugs til Dusseldorf, Hamborgar og Berlínar þá mun félagið áfram bjóða upp á ferðir til Kölnar og Stuttgart í sumar líkt og undanfarin ár. German Wings er eina félagið sem flýgur héðan til Kölnar en sumarið 2012 spreyttu bæði Iceland Express og Wow Air sig á flugi til þýsku borgarinnar.

Af erlendu flugfélögunum á Keflavíkurflugvelli þá eru það bara Airberlin og Easy Jet bjóða upp á flug til jafn margra staða og German Wings mun gera næsta sumar.

Uppfært: Öfugt við yfirlýsingar talsmanns Lufthansa þá mun félagið halda áfram að sinna flugi milli Dusseldorf og Keflavíkur sumarið 2014.

BÍLALEIGA: Rentalscars.com lofar lægsta verðinu
TILBOÐ: 15% afsláttur á góðu hóteli í Kaupmannahöfn

Mynd: Lufthansa

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …