Samfélagsmiðlar

Deilt um flugvélastæðin í Keflavík

Icelandair gæti þurft að víkja fyrir vélum Wow Air við Flugstöð Leifs Eiríkssonar næsta sumar ef áfrýjunarnefnd samkeppnismála tekur undir nýjan úrskurð Samkeppnisstofnunnar. Þangað til ríkir nokkur óvissa um flugáætlanir flugfélaganna yfir aðalferðamannatímann.

Í vor sendu forsvarsmenn Wow Air erindi til Samkeppnisstofnunnar þar sem kvartað var yfir því hvernig Isavia, rekstraraðili Keflavíkurflugvallar, úthlutar flugfélögum afgreiðslutíma við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Stendur styr um leyfi til að fljúga til Evrópu milli klukkan sjö og átta á morgnana og vestur um haf milli klukkan 16 og 17:30. Icelandair hefur um langt árabil nýtt þessa tíma til að tengja saman flug milli Evrópu og N-Ameríku.

Stjórnendur Wow Air ætla að einnig að taka upp þetta fyrirkomulag þegar félagið hefur flug til Bandaríkjanna í byrjun sumars og það er ástæðan fyrir því að félagið leitaði til samkeppnisyfirvalda. Í erindi þess segir: „…verði ekki orðið við kröfum Wow Air þá megi ljóst vera að fyrirhugaður samkeppnisrekstur í flugi á milli Íslands og Bandaríkjanna sé með öllu útilokaður.“ Þrátt fyrir þessa afdráttarlausu afstöðu þá tilkynntu forsvarsmenn Wow Air á miðvikudaginn í síðustu viku að félagið muni hefja flug til Boston í Bandaríkjunum næsta vor. Niðurstaða Samkeppnisstofnunnar lá svo fyrir tveimur dögum síðar og þar er farið fram á við Isavia að tryggja Wow Air tvo afgreiðslutíma við flugstöðina að morgni og seinnipartinn næsta sumar.

Óvissa með flugtíma

Nokkrum klukkutímum eftir að úrskurður Samkeppnisstofnunnar var birtur þá gáfu forsvarsmenn Isavia það út að þeir hyggist áfrýja honum. Í tilkynningu félagsins segir að úthlutunin sé framkvæmd af óháðum alþjóðlegum aðila og telur Isavia óheimilt að grípa inn í með þeim hætti sem Samkeppniseftirlitið krefst.

Í ákvörðunarorðum eftirlitsins segir hins vegar að fyrirkomulag þessa aðila við úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli hafi skaðleg áhrif á samkeppni. Isavia er því ætlað að tryggja Wow Air afgreiðslutíma til flugs til Bandaríkjanna seinnipart dags næsta sumar. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, staðfestir við Túrista að nú sé unnið að því að útbúa áfrýjunina.

Samkvæmt samkeppnislögum skal úrskurður áfrýjunarnefndar liggja fyrir innan sex vikna frá áfrýjun. Áfrýjun frestar hins vegar ekki gildistöku ákvarðana Samkeppniseftirlitsins samkvæmt því sem segir á heimasíðu eftirlitsins. Stjórnendur Wow Air gætu því líklega farið fram á að fá þá afgreiðslutíma sem Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að þeir eigi rétt á. Fallist áfrýjunarnefndin hins vegar á kröfur Isavia þá yrðu tímunum hugsanlega ráðstafað á annan hátt. En afgreiðslutímum fyrir næsta sumar var úthlutað í síðustu viku en þeir verða fyrst gerðir opinberir um miðjan nóvember.

Hver sem niðurstaða áfrýjunarnefndarinnar verður er ljóst að flugáætlun Wow Air og Icelandair næsta sumar er í lausu lofti að nokkru leyti og líklega gerir það félögunum erfiðara um vik að selja sæti í flug þegar endanlegir ferðatímar liggja ekki fyrir.

NÝJAR GREINAR: Auðvelt að finna ódýrari bílaleigubíl
TILBOÐ: 15% afsláttur á góðu hóteli í Kaupmannahöfn

Mynd: Isavia

Nýtt efni

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til Ísafjarðar um síðustu helgi, þýska AIDAsol með nærri í 2.200 farþega. Á sunnudag koma tvö skip með væntanlega 3.000 - 4.000 farþega. Það er farþegafjöldi undir öllum viðvörunarmörkum sem Ísafjarðarbær ætlar að fylgja í framtíðinni vegna komu skemmtiferðaskipa. Nýsamþykktar fjöldatakmarkanir gilda raunar ekki á þessu ári þar sem bókanir hafa …