Það var lítið um tafir hjá Icelandair og Wow Air í síðasta mánuði.
Það fóru fleiri Íslendingar til útlanda í október en yfir sumarmánuðina og langflestir komust á réttum tíma á áfangastað. Nærri allar brottfarir Wow Air voru á áætlun og hjá Icelandair fóru níu af hverjum tíu vélum á tíma. Líkt og áður eru stóðust komutímar í Keflavík sjaldnar en brottfarartímar eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Icelandair og Wow Air stóðu fyrir nærri 90 prósent ferða frá landinu október. Ferðir hinna félaganna voru það fáar að þau eru ekki tekin með í stundvísitöluna að þessu sinni.
Stundvísitölur Túrista – október 2013
1.-31.október. | Hlutfall brottfara á tíma | Meðalseinkun brottfara | Hlutfall koma á tíma | Meðalseinkun koma | Hlutfall ferða á tíma | Meðalseinkun alls | Fjöldi ferða |
Icelandair | 89,7% | 1,5 mín | 81,7% | 2,5 mín | 85,8% | 2 mín | 1299 |
WOW air | 97% | 0,5mín | 90,9% | 3 mín | 93,9% | 1,5 mín | 262 |
Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfarartímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um minna en korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru 14 mínútur dregnar frá öllum seinkunum sem eru lengri en 15 mínútur. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.
Fylgstu með Túrista á Facebook
HÓTEL: Gerðu verðsamanburð á gistingu og bókaðu besta kostinn
TILBOÐ: 15% afsláttur af gistingu á góðu hóteli í Köben
Mynd: Gilderic/Creative Commons