Samfélagsmiðlar

Tveir dagar í Toronto

Það er flogið beint frá Keflavík til stærstu borgar Kanada allt árið um kring. Hér er tveggja daga dagskrá fyrir þá sem vilja sjá margt en verja sem minnstum tíma í leigubílum og lestum.

 

Nærri helmingur þeirra sex milljóna manna sem búa í Toronto er ekki fæddur í Kanada og í borginni eru töluð meira en 180 tungumál. Þessi stórborg býður því upp á mjög fjölskrúðugt mannlíf, ólík hverfi og frábæran mat frá öllum heimsins hornum.

Dagur 1

Hakað við turninn

Í rúma þrjá áratugi var hinn 553 metra hái CN Tower hæsti turn í heimi. Daglega taka þúsundir manna lyftu upp í glerkúluna á hæð númer 114 þaðan sem útsýnið yfir borgina og Ontario vatn er kyngimagnað og 3700 króna virði. Til að minnka líkurnar á langri bið í afgreiðslunni er skynsamlegt að koma snemma og kaupa miða á netinu. Það er opið frá níu að morgni og fram til ellefu á kvöldin.

Tískuhverfið

Þegar komið er niður á jörðina á ný er haldið í vestur eftir Front Street, upp Spadina Avenue og inn King Street. Þar er hjarta Fashion District sem var áður þekkt fyrir blómlega fataframleiðslu en nú eru það búðirnar sem hafa tekið yfir.

Vinsælt bístró í hádeginu

Frakkinn Frédéric Geisweiller hefur staðið vaktina lengi á Le Select bistróinu sínu við 432 Wellingston Street West. Hann vísar fólki til sætis á þessum fallega veitingastað sem hann hefur innréttað í gamalli prentsmiðju. Hádegisseðillinn er það sneisafullur af stórum og smáum klassískum frönskum réttum, t.d. Croque Monsieur (14 dollara) og Confit de Canard (18 dollara). Á kvöldin kostar þriggja rétta máltíð um 50 dollara (5800 kr). Staðurinn er stór en það borgar sig að gera boð á undan sér, sérstaklega á kvöldin og ef þú vilt sitja úti.

Ontario Art Gallery

Stjörnuarkitektinn Frank Gehry er einn þekktasti sonur Toronto og það lá því vel við að fá hann til byggja við eitt af helstu listasöfnum borgarinnar. Afraksturinn er afskaplega þægileg safnabygging sem rúmar nokkrar ólíkar sýningar og auðvitað kaffihús, veitingahús og verslanir.

Kínahverfið og Kensington market

Það eru fjögur hverfi í Toronto sem gera tilkall til Chinatown nafnbótarinnar en svæðið sem liggur rétt vestan við Ontario Art Gallery er aðal Kínahverfi borgarinnar. Hér eru búðir og veitingastaðir merktir með kínverskum táknum og alls kyns varningi er stillt út á stétt. Við Kínahverfið blandast Kensington market, þekktasti markaður borgarinnar, en hann minnir um margt á Camden markaðinn í London þar sem fókusinn er á notuð föt og mubblur. Hér standa hlið við hlið veitingafólk og kaupmenn sem eiga ættir að rekja til allra heimsins horna.

Bar Isabel

Það er hægt að fá tapas mjög víða en við College Street númer 797 hefur kokknum tekist sérstaklega vel að útbúa þessa þekktu spænsku rétti með skemmtilegum brag. Matseðillinn er breytist reglulega en þeir sem vilja borða vel og mikið á óformlegum en fjörugum veitingastað verða ekki sviknir af Bar Isabel. Hér borgar sig að panta borð því staðurinn er mjög vinsæll.

Dagur 2.

Mest sótta safnið

Bygging Royal Ontario Museum setur sterkan svip á Bloor street í norðurhluta miðborgarinnar og því er víða haldið fram að safnið sé eitt af skyldustoppunum í Toronto. Árlega borga rúmlega milljón gestir sig inn á sýningar tengdar risaeðlum, steingervingum og manninum í nútið og fortíð. Það er tilvalið að fá sér léttan hádegisverð á kaffihúsi safnsins áður en lengra er haldið.

Stórverslanir við Bloor Street

Nokkrar af þekktustu verslunarkeðjum heims eru nágrannar Royal Ontario Museum við Bloor Street. Og þar sem búðaráp er hluti af borgarferðum margra þá er ekki ólíklegt að sumir vilji gefa sér tíma hér til að kanna úrvalið.

Aðalfjörið í Toronto

Eftir að stórar keðjur eins og H&M og Starbucks fóru að koma sér fyrir á vesturhluta Queen street flúðu litlu verslanirnar og veitingastaðirnir enn vestar á götuna þar sem áður þótti alls ekki fínt að búa. Í dag er vestasti hluti Queen Street hins vegar rómaður fyrir hugmyndaauðgi þess athafnafólks sem hefur opnað þar búðir, gallerí, bari, hótel og veitingastaði. Það er því ekki úr vegi að rölta rólega niður Queen Street W frá Bathurst Street og niður að Gladstone Avenue og velja sér staði til að kynnast nánast. Þeir sem vilja búa á þessu vinsæla svæði ættu að bóka herbergi á Gladstone Hotel eða Drake Hotel.

Icelandair býður upp á flug til Toronto allt árið.

Sjá einnig vegvísi fyrir Toronto

HÓTEL: Berðu saman verð á ódýrum hótelum út um allan heim
BÍLALEIGUBÍLAR: Bókaðu bílaleigubíl fyrir sumarfríið

Myndir: Ferðamálaráð Toronto, Le Select Bistro og Drake Hotel

Nýtt efni

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …