Það er löng hefð fyrir því að hestar dragi vagna með ferðamönnum um Central Park og nágrenni. Nýr borgarstjóri vill hrossin burt.
Eitt af fyrstu verkum Bill DeBlasio í embætti borgarstjóra New York borgar var að banna hestvagna í Central Park. Í nærri eina öld hefur fólki staðið til boða að fara í útsýnisferð um garðinn og nærliggjandi götur í hestvagni en brátt verður síðasti túrinn farinn. Samkvæmt frétt New York Times þykir borgarstjóranum það bjóða hættunni heima að láta hestvagna fara um stræti innan um bíla, hjólreiðafólk og gangandi vegfarendur. En þrjú hross hafa dáið í traffíkinni á Manhattan síðustu sjö ár.
Rafmagnsbílar fyrir ferðamenn
Bill DeBlasio segist átta sig á því að það sér þörf fyrir samgöngur við Central Park og þá aðallega fyrir ferðamenn. Ætlar hann því að beita sér fyrir því að sérstökum rafmagnsbílum verði leyft að fara þarna um með fólk.
NÝJAR GREINAR: Lægsta verðið þegar engin samkeppni er um farþegana
Mynd: NYC&go